Æskan - 01.02.1992, Side 12
”AN 4U VERDUR EKKIEINS GAMAN!”
anvísur og sagt frá atvikum, mönn-
um og málefnum á sinn einstaka og
kankvísa hátt. Margar gamanvísur
hans hafa orðið landsfrægar.
Nokkrir stjórnarmenn Góðtempl-
arareglunnar á íslandi fóru til Stykk-
ishólms haustið 1990. Þeir voru m.a.
á fundi í barnastúkunni. Þar var Árna
afhent skjal til sannindamerkis um
að hann hefði verið gerður að heið-
ursfélaga Stórstúkunnar fyrir mikið
og gott starf.
BEKKIRNIR SKIPTAST Á
Sú venja hefur skapast að bekkirn-
ir í Barnaskólanum skiptast á um að
flytja skemmtiatriði á fundum barna-
stúkunnar. Það hefur gefist vel. Nem-
endurnir leggja metnað sinn í að flytja
gott og skemmtilegt efni.
Nú eru 106 ár síðan fyrsta barna-
stúkan var stofnuð á íslandi. Hún
starfar enn - og heitir því ágæta nafni
Æskan!
Margt skemmtilegt hefur verið gert
á stúkufundum í 106 ár! Jafnframt
hefur verið minnt á hve mikilvægt er að
forðast allt sem óhollt er, til að mynda
reykingar, - og að koma vel fram við
alla, menn og málleysingja.
Margir hafa lært þar að tjá sig skýrt
og skorinort, vanist því að flytja efni
fyrir aðra og stjórna fundum. Þess
vegna hefur verið sagt að starf stúkna
fyrir börn og fullorðna hafi verið mik-
ilvægasti félagsmálaskóli þjóðarinnar.
Á fundi í barnastúkunni Björk i Stykkishólmi. Valur Úskarsson skemmtir. Myndir: Valdór Bóasson.
annig hljóðaði
auglýsing umfund í
bst. Björk nr. 94 í
Stykkishólmi
fimmtudaginn 23.
febrúar 1989. Hún
er hressileg og fjörleg! Það er
einmitt það sem segja má um
gæslumann hennar, Árna Helgason.
Árni hefur verið gæslumaður
stúkunnar í 41 ár. Hann hefur nú lát-
ið af föstu starfi sem póstmeistari í
Hólminum en hefur þó í mörgu að
snúast sem löngum fyrr. Hann hef-
ur verið óþreytandi í baráttu sinni
fyrir málefnum bindindishreyfingar-
innar. Og hann hefur ótal sinnum
brugðið á leik, samið og flutt gam-
Árni Helgason og
embættismenn
bst. Bjarkar.
„Fundur verður í
barnastúkunni í dag og
verður hann í Barna-
skólanum kl. 18.
Hinir bráðskemmtilegu
6. bekkingar verða með
örugg atriði undir
frábærri stjórn
Guðrúnar Ernu.
Vitið þið hvers vegna
það er alltaf gaman í
stúkunni okkar?
Pað er vegna þess að
allir koma til að
skenmita sér.
Komdu og vertu
með!
An þín verður ekki eins
gaman!“
UMjARNASTÚPNA
HJQRK OG ARNA
IHOLMINUM...
7 2 Æ S K A N