Æskan - 01.02.1992, Page 25
Raunar getum við haft mikil
áhrif á annan hátt: Með því að
koma vel fram við aðra. Þótt í
smáu sé getur það mótað þá
sem við eigum samskipti við.
Með því að skrifast á við út-
lend börn og unglinga leggjum
við góðu málefni líka lið. Kynni
fólks af ólíkum kynþáttum auka
skilning á háttum þjóða.
Við getum reynt - þó að leið-
in verði löng og ströng.
ÝMSAR ÓSKIR
Kæra Æska!
Fyrst vil ég þakka fyrir gott blað.
Ég vil gjarna fá birta fróð-
leiksmola um Sinéad O'Connor og
Whitney Houston. Gætuð þið
einnig haft viðtal við Todmobile?
Mérfinnst að þið gætuð líka reynt
að hafa límmiðana og veggmynd-
irnar dálitlu fjölbreyttari. Ekki bara
af frægu fólki og dýrum. Þið gæt-
uð látið Ijósmynda ýmsa hluti, t.d.
skó, gleraugu, tannbursta eða gaff-
al á rósóttum dúk. Ég veit um
marga sem eru mér sammála um
þetta.
Gætuð þið haft fleiri unglinga-
sögur i blaðinu en hefur verið?
Langamma að norðan.
Svar: Við getum ekki komið
til móts við allar óskir. En Andr-
ea í Todmobile er á leiðinni til
þín í máli og myndum þegar
þetta er skrifað. Okkur berast
afar margar beiðnir um frásagn-
ir og myndir af frægu fólki. Við
komumst ekki yfir það allt - þó
að frá mörgum sé sagt í Æsk-
unni.
Tillögur þínar um límmiða og
veggmyndir eru athygli verðar.
Líklega tökum við mikið mark á
þeim!
Við getum ekki lofað því að
unglingasögum fjölgi til muna.
Þær verða þó annað veifið á síð-
um blaðsins. Og við gefum alltaf
út bækur ætlaðar unglingum...
í MÖRGUM MYNDUM
Æskupóstur!
Mig langar bara til að spyrja
hvort þið ætlið ekki að fara að setja
þáttinn, í mörgum myndum, í blað-
ið aftur? Hann er rosalega
skemmtilegur.
Af hverju hafið þið ekki þátt í
blaðinu þar sem sagt er frá alls
konar störfum? Það skrifa nefni-
lega svo margir Æskupóstinum til
að spyrja um ýmis störf. Og það
tekur mikið pláss þegar sagt er frá
þeim. Þá gætuð þið birt fleiri bréf.
Stína.
Svar: Þátturinn, í mörgum
myndum, verður annað veifið í
Æskunni.
Fyrir allmörgum árum var
þáttur í blaðinu undir heitinu,
Hvað viltu verða? Þar var sagt
frá fjölmörgum störfum. Undan-
farið höfum við kosið að svara
spurningum um störf all-ýtar-
lega íÆskupóstinum. Við mun-
um hugleiða hvort við tökum aft-
ur upp þann hátt sem áður var
hafður á.
MEÐ ÖPUM OG HITA-
BELTISDÝRUM
Kæra Æska!
Þökk fyrir veggmyndina af
hvolpunum. Ég hengdi hana strax
uppávegg.
Mig langar til að spyrja þig
tveggja spurninga:
Getur þú ekki byrjað aftur með
þáttinn, Dýrin okkar, og sagt frá
öpum og hitabeltisdýrum?
Er ekki hægt að hafa vegg-
mynd með Sálinni hans Jóns
mfns?
Ég.
Svar: Þátturinn verður áfram
- öðru hverju. Kannski segjum
við frá dýrum í hitabeltislönd-
um.
Jú! Eins og þú hefur sjálfsagt
þegar séð er vinsælasta ís-
lenska hljómsveitin 1991 (könn-
un Poppþáttarins) ímiðju blaðs-
ins.
ÍÞRÓTTAFÓLK
Kæra Æska!
Þökk fyrir mjög gott blað!
Viljið þið hafa íþróttaþátt í blað-
inu? Þar gætu verið greinar, viðtöl
við frægt íþróttafólk og krakka sem
stunda íþróttir.
Getið þið birt fróðleiksmola um
Alyssu Milano sem leikur stelpuna
í Hver á að ráða?
Mína mús.
Svar: íþróttafólk er iðulega á
síðum Æskunnar - og oft segj-
um við frá íþróttaiðkunum
krakka og afrekum þeirra.
Þannig verður áfram.
Alyssa er ein af fjölmörgum
sem við getum því miður ekki
sagt neitt frá - a.m.k. ekki að
sinni.
VIL KYNNAST ...
Æska mín gób!
Viltu birta þetta:
Ég hef áhuga á að kynnast sem
flestum aðdáendum hljómsveitar-
inn Skid Row - á öllum aldri og um
alit land!
Helga Krlstín Skúladóttir,
Austurvegi 10, 680 Þórshöfn.
FÆÐINGARDAGAR OG
HEIMILISFÖNG
Æskupóstur!
Getur þú sagt mér hvenær Pat-
rich Bach og Whitney Houston eru
fædd? Veistu hvaðan ég get feng-
ið mynd og eiginhandaráritun
Charlie Sheen?
Jóna.
Svar: Eftir mikla leit komumst
við að þessu. Við látum upplýs-
ingar um ýmsa aðra fylgja því
að margir hafa beðið okkur
þess. En við getum ekki svarað
spurningum allra um þessi efni.
Patrich Bach: 30. 3. 1968.
Whitney Houston: 9. 8. 1963.
Charlie Sheen: 3. 9. 1965 -
c/o William Morris Agency,
151 El Chamino Drive,
Beverly Hills,
CA 90112 USA.
Billy Christal: 14. 3. 1947.
Don Johnson: 15. 12. 1948.
Mel Gibson: 3. 1. 1956.
MichaelJ. Fox: 9. 6. 1961.
Lisa Stansfield: 27. 4. 1959.
Sinéad O’Connor: 8. 12. 1967.
Dannii Minogue,
c/o Star Merchandising,
P.O.Box 136,
Warford Hearts, England.
Val Kilmer,
c/o Creative Artists Agency,
Paula Wagner,
9830 Wilshire Blvd.,
Bev. Hills, CA 90212, USA.
Þökk fyrir
bréfin, agætu
bréfritarar!
Gjarna vildum við
fá frásagnir af
félagsstarfi og
viðourðum á
heimaslóðum
áskrifenda...
ÆSKU
PÓSTUR
Æ S K A N 2 5