Æskan - 01.02.1992, Qupperneq 27
SPURT OG SVARAÐ A AUSTURLANDI
Lára Valdís ásamt Magnúsi Karli, Irænda sínum, eins og hálfs árs.
LÁRA VALDÍS KRISTINS-
DOTTIR, REYÐARFIRÐI:
Aldur:
12 ára.
Stjörnumerki:
Ég er í fiskamerkinu (annars trúi
ég ekkert sérstaklega á stjörnuspár).
Ahugamál:
Ég hef mikinn áhuga á frjálsum
íþróttum. Ég æfi spretthlaup, lang-
stökk og spjótkast. í fyrrasumar
keppti ég á sumarhátíð ÚÍA. Það var
gaman þó að ekki ynni ég til verð-
launa.
Starf í fyrrasumar:
Ég gætti eins og hálfs árs frænda
míns fjóra tíma á dag á meðan for-
eldrar hans voru að vinna. Hann var
nokkuð prúður. Ég fékk 100 krónur
átímann.
Vinkonur:
Ásta, Díana, Guðrún, Ellen, Sig-
rún, Aðalheiður, og ísey.
Skólinn:
Mér líkar hann bærilega. Það er
reyndar dálítið mikið að læra en eitt-
hvað verður maður nú að læra.
Skemmtilegast þykir mér í hand-
mennt og matreiðslu. Stafsetningin
er hins vegar leiðinlegust. Félagslíf-
ið er þokkalegt. Á föstudögum fáum
við t.d. að halda diskótek.
Skólaferðalög:
Það er ekki mikið um skólaferða-
lög hjá öðrum en þeim sem eru í
efsta bekknum, 10. bekk. Það er
reyndar farið dálítið í heimsóknir í
skólana á hinum fjörðunum - ef
hægt er að kalla svo stuttar ferðir
skólaferðalög.
Áhugamál:
Útivist (útilegur) og skíðaferðir.
Framtíðarstarf:
Óákveðið.
KRISTJAN RÚNAR
HAUKSSON,
HÖFN í HORNAFIRÐI
Aldur:
11 ára.
Áhugamál:
Sund er mjög ofarlega á blaði. Ég
syndi mikið t.d. á sumrin. Einnig
þykir mér gaman að hjóla og leika
mér við krakka. Á sumrin hjólum við
félagarnir oft í Bergárdal, förum í
þrautakóng, torfærukeppni eða hvað
það nú kallast. Við höfum gjarnan
nesti með okkur. Einnig hjólum við
mikið innanbæjar.
Skóli:
Ég er í 6. bekk. Stærðfræðin er
skemmtileg, einnig lestur. Leiðinleg-
ast er að vera í skriftartímunum. Það
er mjög gott félagslíf í skólanum. Oft
eru haldin böll fyrir 9-12 ára eða sér-
stök bekkjarböll.Svo er dálítið um
klúbbstarf.
Sumarið 1990:
Fjölskylda mín á sumarbústað í
Hellisholti og við dvöldumst oft þar.
Ég var mikið í íþróttum og æfði
frjálsar (einkum hástökk og kúlu-
varp). Einnig æfði ég knattspyrnu
með 5. flokki Sindra. Ég var einn
þriggja markvarða liðsins. Okkur
gekk ekki sem skyldi á íslandsmót-
inu en við reynum að gera betur
næst. Kannski æfðum við ekki nógu
vel.
Helstu vinir:
Sindri, Svenni, Maggi og Steinar.
Framtíðarstarf:
Lögregluþjónn.
Draumaprinsessa:
Ég hef ákveðna stelpu í huga en
vil ekki lýsa henni!
Kristján Rúnar - á leið í sund.