Æskan - 01.02.1992, Qupperneq 34
ISögu rokksins höfum við
farið yfir þessar staðreynd-
ir:
1. Rokkmúsíkin varð til í
Bandaríkjum Norður-Amer-
íku við samruna tregasöngva
blökkufólks (blús) og sveita-
söngva hörundsljósra (hill-
billy).
2. Samruninn hófst á ár-
unum 1930 - ‘40. Rokkform-
ið varð ekki fullkomið fyrr en
með rafgítarleik Chucks
Berrys og öskursöngstíl
Elvisar Presleys og Little
Richards um 1954 - ‘56.
3. Áhugi á rokki fjaraði út
upp úr 1958. í stað rokksins
fylltist skemmti-iðnaðurinn af
fáguðu og væmnu „dúvúbb“-
poppi (Rólegur flutningur á
rokk-laglínum, hlaðinn sykr-
uðum bakröddum, máttlausu
undirspili og kurteisislegum
forsöng).
4. Bresku Bítlarnir (The
Beatles) hófu merki rokks á
nýjan leik á loft með skyndi-
áhlaupi 1963 - ‘64.
5. Fram að komu Bítlanna
var dægurlagaiðnaðinum
stýrt frá Bandaríkjum Norð-
ur-Ameríku. Þeir lögðu und-
ir sig bandaríska dægur-
markaðinn á einni nóttu.
6. Bandaríski dægurmark-
aðurinn var óviðbúinn
snöggri og vel heppnaðri inn-
rás bresku Bítlanna. Þar -
eins og víðar - trúðu menn
því að rokkið væri liðið und-
ir lok fyrirfullt og allt.
í síðasta poppþætti, 13.
hluta Rokksögunnar, sögð-
um við frá því hvernig lög
Bítlanna röðuðu sér í efstu
sæti bandaríska vinsælda-
ímrnlm ■/ ■ i i& '*s'
'<MÍ , B V Æg pip; jpli
Hljómsveitin Manfred Mann (samnefnd orgelleikara sveitarinnar) var
íhópi þeirra ensku rokksveita sem komust í efsta sæti bandaríska vin-
sældalistans íkjölfar „Bítiaæðisins" 1964. Núverandi söngvari Man-
fred Mann var fyrsti og eini söngvari íslensku hljómsveitarinnar
Mezzoforte.
listans - án teljandi sam-
keppni frá innlendum
skemmtikröftum.
Bandarískir skemmtikraft-
ar voru lengi að átta sig á því
hve bandarískur æskulýður
var þyrstur í villta og óheflaða
rokkmúsík. Það liðu nokkur
14.
HLUTI
ár þangað til bandarískir
skemmtikraftar reyndu að
keppa við Bítlana með rokk-
músík í farteskinu.
Áður en Bítlarnir lögðu
undir sig bandaríska vin-
sældalista höfðu þeir vakið
upp öfluga rokkbylgju í
heimalandi sínu, Englandi.
Sú rokkbylgja flaut inn í
bandaríska dægurheiminn í
kjölfar þeirra.
Eftirspurn eftir hráu og ó-
hefluðu rokki var einfaldlega
meiri í Bandaríkjunum en
Bítlarnir gátu einir reitt fram.
Flestar þær ensku rokksveit-
ir sem fylltu í skörðin urðu
langlífar rétt eins og Bítlarn-
ir. Þetta voru hljómsveitir eins
og Animals (með lagið
„Flouse Of The Rising Sun“),
Manfred Mann og síðar
Rolling Stones, Troggs
(„Wild Thing“) o.m.fl.
Þessar hljómsveitir fluttu
hrárri og blúsaðri rokkmúsík
en Bítlarnir. Þær vildu vera
flokkaðar sem takt-blús-sveit-
ir (rythm & Blues). Bítlarnir
forðuðust hins vegar blús-
stimpilinn. Þeir skilgreindu
sjálfa sig sem rokkara. í
Bandaríkjum Norður-Amer-
íku (og víða annars staðar)
voru Bítlarnir og hinar ensku
rokksveitirnar kallaðar sam-
heitinu „Breska innrásin."
FRAMHALD
3 8 Æ S K A N