Æskan - 01.02.1992, Side 41
Frá Ingunni
Þóróardóttur:
Óli, sex ára, hefur valið sér ævi-
starf og útskýrir það á þennan hátt:
„Ég ætla að verða prestur þeg-
ar ég verð stór. Þá þarf ég bara að
vinna einn dag í viku. Það er fínt
fyrir mig því að það er, hvort sem
er, aldrei neitt skemmtilegt í sjón-
varpinu á sunnudögum."
Lítill drengur er í rannsókn hjá
lækninum ...
- Er ekki allt í lagi með eyrun
og nefið, vinur? spyr læknirinn.
- Nei, svarar strákur. Þau eru
alltaf fyrir þegar ég fer úr og í peys-
una mína!
- Heyrðu mig, Anna, segir
pabbi. Hvers vegna kemurðu
svona seint úr skólanum í dag?
- Kennarinn lét mig sitja eftir.
- Lét hann svona duglega telpu
sitja eftir?
- Já, hann spurði hvaða gagn
Golfstraumurinn gerði og ég svar-
aði:
„Hann rekur við að landi og
bætir loftið.“
Andrés var að reyna nýja bíl-
inn sinn. Hann gaf duglega í og ók
greitt.
Eiginkona hans sat í framsæt-
inu og reyndi allt sem hún gat til
að stjórna ökulagi manns síns.
„Ekki svona hratt. Hægðu á þér!
Hemlaðu!!“ æpti hún hvað eftir
annað en Andrés lét sem hann
héyrði ekki til hennar.
Að lokum þreyttist hann samt
og sagði:
„Hvað gengur eiginlega á? Er
ekki allt í lagi, kona?“
„Jú,“ sagði hún. „En það er lög-
reglubíll á eftir okkur og hann er
alltaf að reyna að komast fram úr
- Hvert er nafnið? spurði dóm-
arinn.
- Jón Jónsson, svaraði maður-
inn.
- Hvað ertu gamall?
- Ég verð 85 ára í næsta mán-
uði.
- Finnst þér þú ekki of gamall til
að vera að stela bílum?
- Jú, mérfinnst það. En þegar
ég var ungur voru fáir bílar til!
Úr skólablaði
Klúkuskóla :
- Ertu búin að gleypa þrjá
fimmtíu króna peninga, stelpa?
spurði bálreið móðir.
- Já, en ekki að gamni mínu.
Það var umferðarfræðsla í skólan-
um og ég var stöðumælir...
Maður nokkur keypti sér bíl og
gat greitt hann með saxófóninum
sínum. Skýringin var sú að hann
átti heima í næstu íbúð við bílasal-
ann ...
Ferðaskrifstofa nokkur skipu-
lagði langt ferðalag um eyðimerk-
ur Norður-Afríku. Góðum manni
varð að orði að vonandi rynni sú
ferð út í sandinn ...
Auglýsing: Tennur hafa fund-
ist. Eigandinn getur vitjað þeirra til
mín að Perlustíg 111 - og fær þær
afhentar ef hann gefur skýringu á
því hvernig þær komust í jarðar-
berjatertuna mína ...
Úr Norska
barnablaöinu:
(Norðmenn hafa Svía í því hlut-
verki sem sumir íslendingar hafa
Hafnfirðinga ...)
Nokkrir Svíar stofnuðu hijóm-
sveit og fengu að æfa sig í félags-
heimilinu. Húsvörðurinn kom til
þeirra og sagði:
„Fínt, strákar! Ég var úti að
hlusta á ykkur. Þar hljómaði þetta
vel!“
Þá hlupu allir Svíarnir út til að
heyra hljóminn...
Tveir Svíar voru að veiða í
Laxá. íslendingur var þar líka.
Hann kastaði línunni svo langt af
stönginni að hún fór yfir ána. Þar
voru gæsir á vappi og öngullinn
festist í einni þeirra.
- Vá, maður! sagði annar Sví-
inn. Hér hljóta að vera stórir laxar
fyrst þeir nota svona stórar flugur
í beitu!
Liðsforinginn: Þegar við segj-
um góða nótt hér í hernum þá
merkir það: Steinþegið þið og far-
ið strax að sofa!
Hermaðurinn: Góða nótt, liðs-
foringi!
Svíinn: Það var ekið á mig, lög-
regluþjónn!
Lögregluþjónn: Hvar var það?
Svíinn: Rétt fyrir framan bílinn
Svíi heimsótti íslenskan vin
sinn. Þeir áttu báðir heima í há-
skólabænum Lundi. Þegar hann
ætlaði heim aftur var farið að helli-
rigna.íslendingurinn bauð honum
að vera hjá sér um nóttina svo að
hann yrði ekki holdvotur á leiðinni
heim. Hann fór að búa um hann í
gestaherberginu. Þegar hann kom
frá því sá hann Svíann hvergi. En
eftir stutta stund snaraði hann sér
inn, gegnblautur.
- Ég hljóp bara heim til að
sækja náttfötin mín ...
Æ S K A N 4 5