Æskan - 01.02.1992, Page 42
síns. Jafnframt yrði sýningin tekin
upp á myndband. Það þarf að senda
til Áfengisvarnaráðs fyrir 31. des-
ember1992.
VERÐLAUN VERÐA:
l.verðlaun:
100.000 krónurtil nemenda þess
skóla sem skilar verkinu best að mati
dómnefndar. Auk þess fær skólinn
viðurkenningarskjal eða verðlauna-
grip ásamt upptökuvél fyrir mynd-
band frá Japis.
Uj'jJ SVjJJjJ>2>U l£Jj^ijJVS
feng isvarnaráð
gengst fyrir sam-
keppni milli grunn-
skóla landsins um
sýningu leikrits - og
umrædur og umfjöllun um það
að lokinni sýningu.
Góð verðlaun eru í boði -
þrenn fyrir sýninguna og þrenn
fyrir umræður og tillögur um
hvernig best sé að nýta það
þannig að sem flestir hafi bæði
gagn og gaman að.
Áfengisvarnaráð fékk Iðunni
Steinsdóttur til að semja leikrit sem
fjallar um fjölskyldu og ýmis þau mál
sem þar koma upp. Iðunn hefur
samið fjölda af sögum og leikritum
- eins og þið kannist við - og hlot-
ið margs konar viðurkenningar fyr-
ir verk sín. Þau hafa þótt bæði
skemmtileg og áhugaverð.
Leikritið nefnist Föstudagur hjá
smáfuglunum og tekur um 40 mín-
útur í flutningi. í því eru söngvar og
hefur Jóhann Morávek samið lögin
við þá.
VERÐLAUN FYRIR
SÝNINGU LEIKRITSINS
í fyrsta lagi verða verðlaun veitt
þeim sem að mati dómnefndar skila
bestum árangri á sýningu leikrits-
ins, bæði hvað snertir flutning, fram-
sögn, leik og leikmynd.
Gert er ráð fyrir að nemendur æfi
leikritið og sýni það á árshátíð eða á
annarri skemmtun á vegum skóla
Adalpersónur leikritsins Tommi, Jómbi og Heiða Dögg
2. verðlaun:
75.000 krónur-viðurkenningar-
skjal eða verðlaunagripur.
3. verðlaun:
50.000 krónur-viðurkenningar-
skjal eða verðlaunagripur.
VERÐLAUN FYRIR UM-
RÆÐUR OG UMFJÖLLUN
Annar hluti samkeppninnar er
fólginn í umræðum og umfjöllun um
leikritið og þá atburði, sem þar koma
fyrir, að lokinni leiksýningu.
Er þá tekið tillit til fróðleiksgildis,
fundvísi á atriði sem skipta máli í
daglegu lífi einstaklinga og fjöl-
skyldna, svo og skemmtilegheita og
hugmyndaflugs.
Jafnframt á að skila skriflegri til-
lögu um hvernig best sé að nýta leik-
ritið til umhugsunar, kennslu og um-
ræðu þannig að sem flestir hafi bæði
gagn og gaman af.
Gögnum um þetta þarf að skila
til Áfengisvarnaráðs fyrir 31. des-
ember 1992.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjár
bestu úrlausnirnar, 50.000 krónur
til hvers skóla. Skal þeim fjármun-
um varið til eflingar félagsstarfsemi
í skólunum samkvæmt ákvörðunum
nemendaráðs og skólastjórnar. Jafn-
framt fá þessir skólar viðurkenning-
arskjöl eða verðlaunagrip.
Leikrit íðunnar og nótur við
þau Ijóð sem á að syngja í
því hafa verið send öllum
grunnskólum.
Frestur til að tilkynna
þátttöku rennur út 15. apríl.
4 6 Æ S K A N