Æskan - 01.02.1992, Page 43
Kevin Costner
varð ekki frægur
á augabragði.
Þegar hann fékk
loks bitastætt hlutverk í
kvikmynd voru allir þeir
þættir, sem hann kom fram
í, klipptir úr filmunni! En
nú er hann einn hæstlaun-
aðasti leikarinn í Banda-
ríkjunum...
Kevin leikur aðalhlutverk í kvik-
myndunum Hróa hetti og Dönsum
við úlfa en þær eru í flokki þeirra
mynda sem flestir sáu árið 1991.
Hann hafði raunar ætlað sér að
vinna við auglýsingar en fann brátt
að það átti ekki við hann. Hann til-
kynnti konu sinni að hann ætlaði að
verða leikari. Þau fluttu til Hollywood
- án þess að eiga þar vísan stuðning
nokkurs manns.
Kevin fór á námskeið fyrir leik-
ara. Hann fékk smáhlutverk í litlum
leikhúsum en gat ekki séð fyrir sér
með því. Þess vegna vann hann við
trésmíðar og sem fyrirsætatil að afla
peninga.
Loks fékk hann hlutverk í mynd-
inni Okkar á milli. En myndin var
stytt og hann sást hvergi! Ekki af því
að hann stæði sig illa- heldur þótti
myndin betri án þeirra atriða sem
hann kom fram í.
í myndinni, Dansar við úlfa, fer
Kevin ekki einungis með aðalhlut-
verk. Hann er einnig leikstjóri og
framleiðandi. Margir héldu að hann
myndi tapa stórfé, fólk hefði ekki á-
huga á Indíánamynd - hvað þá
mynd þar sem Indíánamállýska er
Kevin Costner er
einn vinsælasti
kvikmyndaleikar-
inn um þessar
mundir.
Kevin heluryndi
af hornabolta.
Með börn sín, Jó-
hann og Lilju.
töluð á löngum köflum. Raunin varð
sú að kvikmyndin vann til margra
verðlauna og fólk um allan heim
flykktist til að sjá hana.
Kevin lætur áhættuleikara ekki um
varasöm atriði - eins og margir aðr-
ir gera. I myndinni um Hróa hött
hleypir hann hesti berbakt á harða-
spretti um skóginn, berst í einvígi
undir 70 m háum fossi og stekkur
úrtrjám.
KEVIN
• er fæddur 18. janúar 1955 í
Lynwood í Kaliforníu...
• stundaði nám í viðskiptadeild
Kaliforníuháskóla og braut-
skráðist þaðan 1978...
• er kvæntur Cindy Silva. Þau
kynntust í Disneyheimi. Það
var ást við fyrstu sýn - og
hefurenst! Þau giftu sig 1978
og eiga þrjú börn, Önnu sjö
ára, Liljufimm áraog Jóhann
þriggja ára. (Ensku nöfnin eru
Annie, Lily og Joe) Cindy er
að læra byggingalist og hönn-
un...
• hóf kvikmyndaferil sinn í
myndinni “Sizzle Beach“ 1979
- og fékk 500 dollara fyrir leik
sinn...
• varð að greiða tvær milljónir
dollara úr eigin vasa þar sem
kostnaður við myndina Dans-
arvið úlfafórfram úráætlun.
Samið hafði verið um að þeir
sem veittu fé í hana legðu
fram 16 milljónir. Hann mun
hafa fengið sýnu meira en
framlag sitttil baka...
• fékk átta milljónir dollara (480
milljónir íslenskra króna) í
laun fyrir leik sinn íHróa
hetti...
• leikur í frístundum með
hljómsveit að nafni “Roving
Boys“...
• ákvað í samráði við konu sína
að aldrei skyldi rætt um hann
sjálfan á heimilinu...
• hitti Madonnu eftir einhverja
hljómleika hennar (hún sendi
honum boðsmiða), kvað sýn-
inguna hafa verið ágæta en
hélt síðan þegar á brott; sagði
að fjölskylda sín biði eftir
sér...
Æ S K A N 4 7