Æskan - 01.02.1992, Side 52
Mjólkurdagsnefnd hafði frum-
kvæði að því að mjólkurbú og -sam-
lög kynntu fyrirtæki sín og fram-
leiðsluvörur. Það var gert með ýms-
um hætti um allt land.
Um 2000 nemendur í grunnskól-
um, 8-11 ára, komu í glæsilegt hús
Mjólkursamsölunnarað Bitruhálsi 1
í Reykjavík. Þar þágu þeir veitingar,
tóku þátt í getraun og fylgdust með
lýsingum starfsmanna á vinnu og
tækjum.
Margir urðu undrandi á því hve
tækjabúnaður er fullkominn og að
öllu skuli, að heita má, stjórnað með
vinnslu ítölvu.
'.y
;**j\ jTffrj J6Hp|,
^Zgtái 2®
Allir urðu margs vísari um það
hvernig farið er með mjólkina frá því
að hún kemur með tankbílum til
Mjólkurstöðvar Reykjavíkur þar til
henni er pakkað í þær umbúðir sem
við þekkjum - sem nýmjólk, létt-
mjólk, undanrennu, súrmjólk og
rjóma (Þær vörur eru líka framleidd-
ar í hinum þrem mjólkurbúum fyr-
irtækisins).
Emmess-ísinn er búinn til í öðru
húsnæði, við Brautarholt í Reykja-
vík, en ostar eru gerðir á Selfossi og
í Búðardal. í Borgarnesi erframleidd
þykkmjólk, á Selfossi jógúrt og
geymsluþolnar vörur (G-vörur), svo
sem kakómjólk.
Það dró ekki úr hrifningu krakk-
anna að sterkasti maður heims,
Magnús Ver Magnússon, kom og
mælti með því að þeir drykkju mjólk
og neyttu mjólkurafurða. Ekki spillti
fyrir að hann jafnhattaði nokkra úr
hópnum - án sýnilegrar áreynslu.
Odd Stefán Ijósmyndari brá sér
á staðinn og tók nokkrar ágætar
myndir...
fyrrahaust efndi Mjólk-
ursamsalan í Reykja-
vík, MS, til kynningar
á starfsemi sinni. Fyr-
irtækið er sölusamlag
mjólkursamlaganna á
Suður- og Vesturlandi og var stofn-
sett 1935. Svæði Samsölunnar nær
frá Lómagnúpi að austan í Þorska-
fjörð að norðan. Þar eru starfrækt
fjögur mjólkursamlög: Mjólkurbú
Flóamanna á Selfossi, Mjólkurstöð-
in í Reykjavík, Mjólkursamlag Kaup-
félags Borgfirðinga í Borgarnesi og
Mjólkursamlag Dalamanna í Búðar-
dal.
Girnilegt erþað!
Magnús I/er,
sterkasti maður
heimst,
jafnhattaði nokkra
úr hápnum - að
sjálfsögðu
áreynslulaust!
Hann mælir með
mjólk!
JVIAGNU*
STERKASTI uib
5 6 Æ S K A N