Æskan

Volume

Æskan - 01.06.1993, Page 17

Æskan - 01.06.1993, Page 17
Svar: Veggmynd af Júlíu hefur fylgt Æskunni (6. tbl. 1992) Við munum segja eitthvað frá henni á næstunni. Það þykir almenn kurteisi að rita fullt nafn og heimil- isfang undir bréf. Það höf- um við margsinnis nefnt. Krafa um nafnritun undir bréf til Æskuvanda er líka gerð vegna þess að þá er unnt að ganga úr skugga um hver sé sendandi bréfs- ins. Við sendum áskrifendum stundum bréf ef langt líður frá því að spurningar berast þar til svarið er birt. Ef þeir hafa ekki verið áskrifendur þegar grein birtist um þann sem þeir hafa dálæti á - eða veggmynd - sendum við tölublaðið ef við eigum það. Þess vegna geta bréfritarar líka haft hag af því að rita nafn og póstfang -simanúm- er má gjarna fylgja en er ekki skilyrði. Skriftin bendir til vand- virkni og samviskusemi. ÞÁVEISTU SVARIÐ Kæra Æska! Ef einhver sem les þetta á texta við góð íslensk lög, t.d. Þá veistu svarið, má hann senda mér þá. Eva og Adam er skemmti- leg teiknimyndasaga. Þökk fyrir gott blað. Cunnhildur Elva Árnadóttir, Fjarðarbraut 7, 755 Stöðvarfirði. STJÁKLAÐ Á STRÖNDINNI Sæll, Æskupóstur! Ég vil styðja „Anga" sem sagði í 3. tölublaði að í blaðinu mætti vera meira efni fyrir stálpaða krakka en verið hefur. Getið þiö birt veggmyndir af Þrince, Ingibjörgu Stefánsdótt- ur, Jason Priestley og hljóm- sveitinni „Ace of Base”. Ég þakka fyrir kynninguna á Billa og Eriku. Þið mættuð kynna aðra sem leika í Strand- vörðum. VFE Svar: Veggmynd af Prinsi fylgdi 7. tbl. Æskunnar 1990. Ann- að mun tekið til athugunar. Sýningum á annarri þátta- röðinni um Strandverðina er lokið. Erlendis er byrjað að sýna þætti úr þriðja hlutan- um. Sjónvarpið hefur óskað eftir þeim og sennilegt er að þeir verði á dagskrá í vetur - en óijóst hvenær þeir hefj- ast. Billi og Erika leika ekki i þeim þáttum. Leikararnir, sem taka við, heita David Charvet og Pamela Ander- son. Þetta er fyrsta hlutverk Davíðs. Hann er franskrar ættar og er sólginn í góðan mat sem hann gjarna býr til sjálfur. Hann hefur aldrei neytt áfengis afþví að hann sá föður sinn verða drykkju- mann. - Pamela leikur einnig í sjónvarpsþáttunum „Home Improvement” sem eru mjög vinsælir i Bandaríkjunum. - Við segjum væntanlega nán- ar frá þeim þegar þau birt- ast á skjánum. Við höfum veitt upplýsing- ar um Davið Hasselhoff (sem einnig er vinsæll söngvari, a.m.k. i Þýskalandi) - í 1. tbl. 1993, bls. 21 - og Jeremy Jackson sem leikur Hobba - í 5. tbl. bls. 26. Hann er lika kynntur á bls. 61 í þessu tölublaði. UPPLÝSIN6AR ÓSKAST Kæri Æskupóstur! Ég þakka ágætt blað. Svo langar mig til að biðja um upp- lýsingar um Sean Þatrick Flanery sem leikur Indiana Jo- nes stálpaðan í sjónvarpsþátt- unum. I 3. tbl. Æskunnar var sagt að hann yrði kynntur í 4. tbl. en það var ekki gert. Inga. Svar: Okkur tókst þvi miður ekki að afla nógu bitastæðra upplýsinga um þennan leik- ara. Við bíðum og sjáum hvað setur. STRANDVERDIR ENN Kæra Æska! Mig langar til að spyrja hvort þið getið sagt mér hvar Billi og Erika eiga heima því að það var ekki nefnt í 3. tbl. þar sem sagt var frá þeim. Katrín Einarsdóttir. Svar: Við vitum ekki hvert heim- ilisfang þeirra er en aðdá- endaklúbbur Strandvarða er starfræktur í Englandi. Hann mun senda ýmsar upplýs- ingar, myndir og skírteini til félaga - en félagsgjald er 10 pund á ári, tæpar eitt þús- und krónur. Nánari upplýs- ingar eru veittar um starf- semina ef eftir er spurt. Klúbburinn óskar eftir að fá frímerkt umslag áritað nafni og heimilisfangi sendanda - til að geta sent svar sitt í. Póstfang klúbbsins er: Baywatch Fan Club, P.O.Box 1443, Poole, Dorset, BH15 3YP, Englandi. SÁLFRÆÐI OC SJÓNVARPS- ÞÆTTIR Sæl, Æska! Ég hef nokkrar spurningar sem ég vona að þið getið svarað: 1. Getið þið fjallað um nám í sálfræði? 2. Af hverju birtuð þið ekki veggmynd af Ingibjörgu Stef- ánsdóttur? 3. Viljið þið birta veggmynd af Nágrönnum og fjalla eitt- hvað um leikarana? 4. Viljið þið reyna að hafa meira efni fyrir unglinga í blað- inu, t.d. sögur og unglinga- opnu - fyrir utan Æskuvanda sem er mjög góður þáttur. 5. Verða sýndir fleiri þættir af Strandvörðum eftir að þessi hluti er búinn? Þökk fyrir ágætt blað en Þoppþátturinn mætti gjarna lagast. R. Svör: 1. Sálfræðinámi var lýst í 1. tbl. Æskunnar 1990, á bls. 44. Þetta skal endurtekið: Sálfræði er kennd við Há- skóla íslands - til BA-prófs. Flestir Ijúka þvi á þrem og hálfu ári. Prófið veitir ekki bein starfsréttindi. Ef kennslufræði er numin í eitt ár fást kennsluréttindi. Ýms- ir læra og félagsráðgjöf. Er- lendis eru kenndar ýmsar greinar i framhaldi af BA- prófi. Fólk með sálfræði- menntun fæst við ýmis störf: Umönnun og meðferð þeirra sem eru hugsjúkir eða geð- veikir; ráðgjöf til nemenda og aðstoð við skólastjórn- endur vegna skipulags í skólum; rannsóknir; starfs- mannastjórn. 2. Falleg mynd af henni var á forsíðu 2. tölublaðs Æskunnar. Við það var látið sitja og reynt að koma til móts við óskir margra um veggmyndir af öðru fólki. 3. Við tökum það til athug- unar. 4. Reynt er að hafa í blað- inu efni sem höfðað geti ým- ist til barna eða unglinga - og annað sem við vonum að báðir aldurshópar hafi gam- an af. 5. Sjá svar við bréfi frá VFE - undir fyrirsögninni Stjáklað á ströndinni. Þökk fyrir bréfin! Við reynum að veita upplýsingar um sem flest af því sem óskað er eftir en höfum ekki rými, tíma eða heim- ildir til að segja frá öll- um þeim leikurum sem spurt er um. Við geymum öll bréf sem okkur tekst ekki að svara og bætum úr því ef kostur er. ÆSKU PÖSTUR Æ S K A N 17

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.