Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1993, Blaðsíða 33

Æskan - 01.06.1993, Blaðsíða 33
SVAÐILFÖR eftir Hönnu Maríu Kristjánsdóttur 13 ára. Stundum er erfitt að vera smár. Því kynntist ég þegar ég horfði upp eft- ir hamrinum. Ég þyrfti að minnsta kosti hálfan dag til að klífa þetta fjall. Það var sólríkur sumardagur og mjög heitt í veðri þegar ég ætlaði í þessa þolraun, að klífa upp mjög oddhvassan hamar. Ég ætlaði einn upp af því að konan mín, hún Rósa, nennti ekki með mér. En það var vegna þess að hún hafði kom- ið sér svo vel fyrir á hamrinum vib hliðina. En ég varð samt að fara upp til að ná mér í rykkorn að borða. Og þá lagöi ég í hann. Þetta var mjög erfitt, sérstaklega af því að það var svo heitt. En ég reyndi bara að hugsa um eitthvað annað til að mynda hverja ég mundi hitta þarna uppi og fleira slíkt. Þegar ég var kominn vel áleiðis lenti ég í miklum og leiðinlegum erfiðleikum. Það er eins og að ganga í miðjum, uppþornuðum árfarvegi eða völundarhúsi að ganga á milli þessara odda og allt í einu fylltist þessi uppþornaði ár- farvegur af vatni og skolaði mér niður. Slíkt hafði einu sinni áður komið fyrir og í þab skiptið fót- brotnaði ég en ég slapp alveg ómeiddur núna. Vatnselgurinn stafaði af því að einhver risi var að sprauta vatni úr löngum ormi eða slöngu á hamarinn til þess að hreinsa hann. En þarna lá ég kylli- flatur og rennblautur í ofanálag og átti eftir að klífa upp aftur. Ég dreif mig af stab. Mér gekk bara mjög vel upp eftir alveg hreinum hamri þangað til ég sá orm á fleygiferö niður. Ég hugsaði bara: „Aumingja ormurinn!” Stundum er manni kastað svona niður eins og honum. En hvað um það? Nú var ég kominn upp og dreif mig bara inn. En hvað sé ég? Er stúlkan sem á þarna heima að þrífa einu sinni enn? Ég vonaði bara að hún væri ekki búin að þrífa allt rykið af því að ég var svangur eftir klifrið. En eitthvað var eftir svo að ég byrjaði bara að eta. En þá verð ég fyrir hræðilegu áfalli. Stúlkan kom hlaupandi með risastóran úða- brúsa á lofti og ég veit hvað það merkir: HLAUPA! Og það gerði ég. Ég hljóp og svo valt ég niður allan hamarinn eða hraunaba vegginn eins og mennirnir kalla það. Og þetta endaði með því að ég brákaöist á baki og þurfti að liggja í tvær vikur í sólbabi með henni Rósu. Svona getur lífið verið erfitt, - SÉRSTAKLEGA FYRIR ROÐA- MAUR! (Hanna María hlaut aukaverðlaun í smásagnakeppninni 1992). Æ S K A N 3 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.