Æskan

Árgangur

Æskan - 01.06.1993, Síða 40

Æskan - 01.06.1993, Síða 40
PLÚTUOÚMAR Titill: Svefnvana Flytjandi: Hljómsveitin G.C.D. GCD er íslenskur sam- nefnari Rolling Stones, Guns N’Roses og Creedence Clearwater Revival. Með hrátt og einfalt rokk að vopni lagði GCD undir sig markaðinn sum- arið 1991. Áhlaupið var óvænt. Jafnóvænt var brotthvarf hljómsveitarinnar af sviðinu sama haust. Núna tveimur árum síðar hefur þessi kraftmikli rokk- kvartett verið endurreistur. Þetta óvenju langa hlé hef- ur ekki breytt hljómsveitinni sem neinu nemur. Það er helst að hlutfall léttra popp- laga sé hærra en fyrr. Eins má merkja dálítið aukna fágun í hljóðvinnslunni. Tónblærinn („sándið") er hreinni en fyrr og allur flutn- ingur er yfirvegaðri, jafnt hljóðfæraleikur sem söng- ur. Sérstaða GCD felst í því að þetta er eina íslenska hljómsveitin sem leyfir sí- gildu rokki að blómstra. Þeir kæfa það ekki í tilgerð eða sýndarmennsku í fingrafimi. Þeir sliga það ekki með flatneskjulegum samsöng eða ósannfærandi tískuút- setningum. GCD rokka af lífi og sál. Áhrifavöldum er hvergi leynt: Trommuleikurfrá Led Zeppelin, kassagítarblús í anda KK og heilir kaflar frá Stóns og CCR. Sums stað- ar jaðrar þetta við smekk- leysi. En þegar það er fram- kvæmt á svona opinskáan og einlægan máta þá lend- ir það réttu megin við strik- ið. Bestu lög: Flug-leiða-blús og Rökkurótti. Einkunn: 9.0 (fyrir lög), 3,5 (fyrir texta) og 8.0 (fyrir túlkun) = 7,0. Titill: Pelican Flytjandi: Hljómsveitin Pelican Gítarleikarinn Guðmund- ur Jónsson er í hópi betri lagasmiða íslenskrar rokk- músíkur. Þlötur Sálarinnar hans Jóns míns eru til vitn- is um það. Nú hefur Guð- mundurfært sig um set; úr Sálinni yfir í endurreista hljómsveitina Þelican (1973-75). Samanburður á þessum tveimur hljómsveitum er Sálinni í hag. Liðsmenn Þelicans ná ekki að koma lögum Guð- mundar á sama flug og Stefáni Hilmarssyni og fé- lögum tókst í Sálinni. Það er eins og sálin í lögunum nái ekki upp á yfirborðið undir búningi amerísks iðn- aðarrokks („U.S. Faceless Rock“). Liðsmenn Þelicans hafa alla tíð verið meiri sviðs- menn en hljóðversmenn. í því gæti skýringin legið. Þeir hafi einfaldlega ekki kunnað við sig - fundist þeir vera lokaðir inni í tóm- legu hljóðveri án áheyrenda og án urrandi stemmningar, eins og Hemmi Gunn myndi orða það. Ofan á þetta bætist að það er ekki létt hlutverk fyr- ir Pétur Kristjánsson að lenda í samanburði við vin- sælasta söngvara landsins, Stefán Hilmarsson. Báðir eiga þó við sama vandamál að stríða; þaö er á mörkun- um að söngstíll þeirra hafi upp á nægilega fjölbreytt blæbrigði að bjóða fyrir 14 laga plötu. Báðir eru þó ágætir söngvarar, hvor á sinn hátt. Besta lag: Á ystu nöf. Einkunn: 6,5 (fyrir lög), 2,5 (fyrir texta) og 5,0 (fyrir túlkun) = 4,7. 4 4 Æ S K A N

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.