Æskan - 01.06.1993, Síða 41
FRÆNDUR OKKflR IVESTRI
Hvaö mörg af ykkur, sem lesið Æsk-
una, vita að skátastarf á Grænlandi hófst
ekki fyrr en 2. febrúar árið 1943? I ár var
því haldið upp á 50 ára afmælið. Enn
þann dag í dag eiga þeir ekkert æfinga-
svæði og engan skátaskóla eins og við
eigum til dæmis á Úlfljótsvatni. En nú skal
bæta úr því. Grænlenska póststjórnin gaf
út frímerki á þjóðhátíðardaginn okkar 17.
júní. Verð hvers frímerkis er 50 aurar
danskar og þeim skal varið til þess að
byggja upp skátaskóla og foringjaþjálf-
unarmiðstöð, ILLORPUT.
Þótt vitanlega hafi verið haldið upp á
afmælið 2. febrúar þá verður enn meira
um dýrðir í sumar þegar skátar frá 11
löndum auk heimalandsins hittast á
skátamóti í Syðri Straumfirði eða í Kan-
gerlussuaq. Þetta gerist dagana 18.-28.
júlí og er búist við að þarna hittist um það
bil 2000 skátarfrá Grænlandi, Danmörku,
Færeyjum, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi,
Hollandi, Lúxemborg, Englandi, Sviss,
Ástralíu og Nýja Sjálandi. Grænlenskir
skátar hafa boðið fleiri þjóðum til afmæl-
isins en ekki gátu þær allar þegið boðið.
Það var ekki fyrr en á sjöunda áratug
aldarinnar að skátafélögum var komið á
legg í öllum grænlenskum bæjum. Hreyf-
ingin er því afar ung í raun. Því er græn-
lenskum skátum það mikils virði að halda
þetta mót, auka reynslu sína og efla kynni
af skátum frá öðrum löndum.
Það var Klaus Möller sem stofnaði
fyrsta skátaflokkinn með bjartsýnum
drengjum í Nuuk árið 1943. Þetta fræ,
sem hann þá sáði, hefir nú borið ríkuleg-
an ávöxt. Klaus Möller í Kilaaseeraq var
fæddur 1917 og lést árið 1983. Ári eftir að
skátaflokkurinn hóf starf sitt var annar
flokkur stofnaður í Kennaraskólanum í
Nuuk. Þaðan breiddist svo hugmyndin
út og skátafélög voru stofnuð víða um
landið. Þannig varð Kennaraskólinn ekki
aðeins vermireitur fyrir menntun, heldur
einnig fyrir skátahugsjónina. Skátafræin,
sem sáð var þar, báru góðan ávöxt i flest-
um bæjum Grænlands.
Nú hefur svo grænlenska póststjórnin
rétt hjálparhönd til að hægt verði að
byggja upp eigin skátaskóla og foringja-
þjálfunarmiðstöð en það er nauðsyn
hverju skátasambandi. Hin snotru skáta-
frímerki með mynd ungu skátanna sem
horfa út úr tjaldinu sínu er þannig upp-
Fyrsta dags bréf með
skátafrimerkinu.
haf að bættu skátastarfi á Grænlandi.
Það er óskandi að sem flestir 50 aurar
drjúpi í þennan sjóð svo að úr foringja-
þjálfuninni geti komið sem flestir og best-
ir skátaforingjar.
Frímerkin eru teiknuð af Naja Abelsen
og eru prentuð 40 frímerki í hverri örk en
auk þess eru gefnar út sérstakar blokkir
með fjórum frímerkjum. Þá eru einnig tvö
Rauða kross frímerki í blokkinni gefin út
sama dag. Hvert frímerki er að verðgildi 4
krónur og svo er viðbótarverðið 50 aurar.
Þannig kosta blokkirnar 18 danskar krón-
ur hver.
Sérstakur skátastimpill verður notað-
ur til þess að stimpla fyrsta dags um-
slögin. Einnig verður sérstakur Rauða
Kross stimpill notaður á Rauða Kross frí-
merkin.
Myndefni Rauða Kross frímerkjanna er
sólin að koma yfir hafflötinn og fjöll í bak-
sýn en fánalitirnir eru á himninum - og
sólin á sama hátt og í grænlenska fán-
anum. Þá fljúga þrír fuglar með rauðan
kross í nefinu yfir sól að sjá.
Tjaldbúðir skáta i Syðra
Straumfirði.
Frimerkin tvö sem
komu út 17. júni.
KALAALLIT R0DE KORSIAT
± -Í V
4.00
+50
Kalaallit NunaatGronland
K N
A U
L N
A A
A A
L T
|C &
i <>4:*- r"”T'T
<.
H
0
N
L
\
iV
JdL
Æ S K A N 4 5