Æskan

Volume

Æskan - 01.06.1993, Page 50

Æskan - 01.06.1993, Page 50
HRIFNINC Kaera Æska! Ég er afar hrifin af strák sem er einu ári yngri en ég. Mig hefur oft dreymt um að við verðum góðir vinir en aldrei meira en það. Vin- kona mín hélt teiti fyrir stuttu. Hann kom þangað og líka einhverjar vin- konur hennar sem við þekktum ekki. Við fórum að dansa og hann bauð einni þeirra upp. Pau döns- uðu saman allt kvöldið. Svo spurði vinkona mín strákinn hvort hann vildi byrja að vera með þessari stelpu og hann sagði já. Hann veit að ég er hrifin af hon- um. Hann leit stundum til mín og horfði á mig stutta stund. Hvað á ég að gera? Ég er afskaplega hrif- in af honum. Hvað lestu úr skriftinni og hvað er ég gömul? Ég. Umsjón: Sigurborg Sveinbjörnsdóttir Nanna Kolbrún Sigurðardóttir hefur óskað eftir að haetta sem umsjónarmaður þessa þáttar - sökum anna við önnur störf. Við kunnum henni kæra þökk fyrir góð ráð sem hún hefur gefið ótal mörg- um í svörum sínum. Við umsjón þáttarins tekur Sig- urborg Sveinbjörnsdóttir. Hún hef- ur starfað lengi með börnum og unglingum og kann vel til þessara verka. En öllu skiptir að þeir sem skrifa bréf til þáttarins - eða lesa hann til að leita sér ráða - takist sjálfir á við vandann með hliðsjón af ráðleggingum - með jákvæðu hugarfari. BOLLURASSINN Kæri Æskuvandi! Ég á við „feitt" vandamál að stríða. Mér, vinkonu minni og syst- ur minni (sem er sjö árum eldri en ég) finnst ég vera með of stóran rass (- samt segir enginn það ber- um orðum). Ég var nýbúin að fá nýjar gallabuxur. Þegar ég mátaði þær sögðu þær: „Of þröngar um rassinn." Vinkona mín er alltaf að ýja að því að ég sé með stóran rass. Hún segir: „Rassinn á þér er bjánalegur og buxurnar eru of þröngar.“ Mérfinnst hún óþolandi en hún er ekki aðal-vandamál mitt. Það sem mig vantar eru ráðleggingar um hvernig ég geti minnkað rass- inn á mér. Ég borða ekki mikið af fitandi mat. Ungfrú Bollurass. Svar: Holdafar fólks er mjög mis- munandi og oft erfist það. Þú talar um að systirþin og vinkona segi að rassinn sé of stór. En hvað finnst foreldrum þínum um holdafar þitt? Hafa þeir áhyggj- ur af þér? Þú ættir að ræða þetta við þá. Margir unglingar eyða oft miklum tíma fyrir fram- an spegilinn og þvi miður allt of margir i þeim tilgangi að finna að sjálfum sér. Þeir finna útliti sinu allt til foráttu. Oftast varir þetta skamma hríð og foreldrar verða að sýna umburðarlyndi á meðan. Þegar fullum kynþroska er náð liður þetta timabil hjá og flestir unglingar sættast við lik- ama sinn. Þú biður um ráðleggingar um hvernig þú getir minnkað rass- inn. Megrunarkúrar eru ekki lausnin. Hægt er að stunda í- þróttir, þ.e. sund, gönguferðir og fleira; borða mikið af græn- meti og ávöxtum, drekka mikið vatn, sleppa sætindum og gosi en borða annars allan hollan mat. Svar: Vini þinum hefur þótt spenn- andi að kynnast þessum stúlk- um. Reyndu að tala við hann um þetta mál og kannaðu hug hans til þín. Þú ert greinilega hrifin af honum og sennilega hefur hann áhuga á þér. Þú getur reynt að kynnast honum betur. Tilfinn- ingar breytast ört á unglingsár- unum. Yfirleitt er vinátta og frændsemi traustara en skot á þessum aldri. Skriftin er falleg og skýr og ber vott um vandvirkni. Ég held að þú sért 13 eða 14 ára. V____*L 5 4 Æ S K A N

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.