Æskan - 01.08.1994, Blaðsíða 3
EFNISYFIIUIT
Söngvarakeppnin - bls. 46
Kæru lesendur!
Útgáfudagur þessa tölublaðs er 5.
október. Sama mánaðardag fyrir 97
árum kom Æskan, barnablað með
myndum, fyrst út. Ávarpsorð fyrsta rit-
stjóra þess, Sigurðar Júlíusar Jóhannes-
sonar, síðar læknis og skálds, hófust
þannig:
„Æskan er fyrsta barnablaðið sem
gefið er út á íslandi. f öðrum löndum eru
víða gefin út mörg barnablöð og hafa
þau öll mjög mikla útbreiðslu; vér von-
umst því til að þetta litla blað verði öllum
börnum kærkominn gestur og verði vel
tekið því vér erum sannfærðir um það
að börnin á íslandi eru eins fróðleiksfús
og annars staðar."
Æskunni var sannarlega vel tekið og
hefur verið ætíð síðan. Hún hefur jafnan
verið unnin með bestu tækni sem völ
hefur verið á og mótuð eftir óskum les-
enda. Þær hafa komið fram í bréfum og
samtölum.
Nú ætlum við að kanna rækilega
hvort efni Æskunnar er ekki að öllu leyti
eins og þið viljið. Þess vegna fylgir
spurningalisti þessu tölublaði. Við biðj-
um ykkur að svara honum og senda
okkur. Foreldrar fá líka tækifæri til að
láta álit sitt í Ijós. Þrjátíu þátttakendur fá
að launum íþróttabol og bók frá Æsk-
unni.
Og þá er að fletta áfram! Á næstu
síðu kynnum við árlega verðlauna-
keppni með Skotlandsferð í aðalverð-
laun og fljótlega kemur að Kára sem
leikur Emil í Skýjahöllinni og Eiði Smára
knattspyrnukappa en litlu síðar að
nokkrum sigurvegurum í söngvara-
keppni Æskunnar og Ingvari Sigurðs-
syni leikara - svo að fátt eitt sé nefnt.
Með hlýrri kveðju,
Karl Helgason.
fr 3IEMbI
Barnablaðið Æskan - 7. tbl. 1994. 95. árgangur.
Skrifstofa er að Eiríksgötu 5, 3. hæð. Sími ritstjóra er 10248; á afgreiðslu blaðsins 17336; á
skrifstofu 17594 • Áskriftargjald síðara misseris 1994: 1996 kr. • Gjalddagi er 1. september.
Lausasala: 520 kr. • Póstáritun: Æskan, pósthólf 523, 121 Reykjavík • 8. tbl. kemur út 5.
nóvember. • Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Karl Helgason, hs. 76717 • Framkvæmdastjóri:
Guðlaugur Fr. Sigmundsson • Útlit og umbrot: A FJÓRIR (Hjörtur Guðnason) • Teikningar:
Halldór Þorsteinsson • Litgreiningar og filmuvinna: Offsetþjónustan hf. • Prentun og bókband:
Prentsmiðjan Oddi hf. • Útgefandi er Stórstúka íslands I.O.G.T. • Æskan kom fyrst út 5.
október 1897.
Á forsíðu eru Elísabet Leifsdóttir, verðlaunahafi i áskrifendagetraun Æskunnar 1994; Kári
Gunnarsson, aðalleikari i Skýjahöllinni; feðgarnir Eiður Smári og Arnór Guðjohnsen knatt-
spyrnukappar og Ingvar Sigurðsson leikari (Gauragangur, Hárið).
8 “Skundi var dálítill ólátabelgur"
— segir „Emil“ = Kári Gunnarsson
14 „í fyrsta lagi aö æfa mikið ..."
Eiður Smári Guðjohnsen svarar aðdá-
endum
29 Hafþór í þolfimi
46 Söngvarakeppni Æskunnar
50 „Ég átti leynifélaga"
Ingvar Sigurðsson leikari svarar aðdá-
endum
53 Vagga og gervihnöttur
- um jó-jó-keppni Vífilfells
56 Draumaferð til Danmerkur
Elísabet Leifsdóttir segir frá
11 Sjávarsæia
20 Kristalskúla Hamraskógarins
40 Frá bernskuvori
TiIKNIiYNÐASðGUR
18 Eva og Adam
38 Reynir ráðagóði
60 Dagbók Berts
ÞÆTTIR
12 Unglingareglan
24 Æskupósturinn
26 Lágfóta landvörður
28 Heilsuefling MagnúsarSchevings
43 Poppþátturinn
54 Frímerkjaþáttur
58 Æskuvandi
ÝMISLEGT
4 Verðlaunasamkeppnin
6 Skrýtlur
7 Kátur og Kútur
13 Skógarálfar
16,17, 37,39, 42 Þrautir
22 Spurningaleikur
27 Spurt á leið um landið
30 Kostar nám þriggja barna ...
- um afmæli Áfengisvarnaráðs
35 Krakkar á hverfishátíð
41 Spilaklúbburinn
49 Lestu Æskuna?
52 Pennavinir/Ráðgátan
55 Teiknikeppnin
62 Verðlaunahafar og lausnir á þrautum i
5. tbl.
¥1
nmm
Mariah Carey
Prodigy
Skýjahöllin
Æ S K A N 3