Æskan

Årgang

Æskan - 01.08.1994, Side 48

Æskan - 01.08.1994, Side 48
„Já, ég hef lært á fiðlu í sex ár og er komin með þriðja stig; líka á pí- anó í tvö ár og hef tekið fyrsta stig á það.“ - Þá hefur þú líklega leikið oft op- inberlega ... „Ég hef spilað á tónleikum og í brúðkaupum. Svo fór ég með hópi krakka til Noregs í vor. Það var í tengslum við verkefnið, Lifandi skógur. Norðmenn höfðu komið til Húsavíkur í fyrra og við endurguld- um heimsóknina. Krakkar úr 8. bekk fluttu söngleik. Ég var í hljómsveit sem lék undir. í henni voru nokkrir krakkar úr tónlistarskólanum en þeir voru reyndar allir eldri en ég, sá yngsti þremur árum (eldri).“ - Þú stefnir væntanlega að því að læra meira á fiðlu? „Já. Ég hef lært hjá Sigríði Einars- dóttur en hún er að hætta að kenna. Ég fæ eistlenskan kennara í vetur.“ - Er tónlistargáfa í ættinni? „Já, ætli það ekki. Mamma hefur sungið með jasskórnum, Norðaust- an 12. Hún og söngkennari heima aðstoðuðu mig áður en ég fór suð- ur.“ - Hvað finnst þér skemmtilegast að læra í skólanum? „Mér finnst rosalega gaman að læra allt.“ LESTHLAUP Á SKAUTUM Jóhannes Helgi Gíslason er 12 ára Akureyringur. Faðir hans vakti hann klukkan hálfellefu að morgni um helgi og sagðist hafa heyrt söngvarakeppnina auglýsta í útvarpi „Ég var kominn þangað sem keppt var klukkan ellefu. Þá var þar dálítil biðröð. - Já, það tóku margir þátt í undankeppninni." - Þú ert væntanlega söngvinn fyrst hann ýtti við þér... Rúnar Júlíusson ósk- ar sigurvegara til hamingju. Helga Margrét og Dagný lifa sig inn i sönginn ... Lára Sóley syngur, Ég einskis barn er. Jóhannes Helgi Gíslason flytur lagið í bljúgri bæn. „Ég hef alltaf sungið mikið. Þegar ég var smástrákur sungum við systir mín oft í bíl hjá afa og ömmu. í hitti- fyrra var ég í barnakór Akureyrar- kirkju og síðastliðinn vetur í barna- kór í skólanum." - Hefur þú kannski sungið ein- söng með þeim? „Með kór kirkjunnar. í sumar söng ég líka í Færeyjum í sumarbúðunum Zarepta. Ég fór þangað á vegum búðanna að Ástjörn. Bogi Pétursson rekur þær. Mig hefur alltaf langað til að læra söng en kemst ekki enn í söngskóla hér á Akureyri því að kennararnir vilja að ég bíði þangað til ég hef far- ið í mútur. Ég finn að ég er að missa drengjaröddina. Það var mjög skemmtilegt að fá þetta tækifæri til að syngja og fá lagið á plötu áður en röddin breytist." - Hvað gerir þú annað í tóm- stundum? „Ég hef æft listhlaup í þrjú ár og æfði fimleika frá því að ég var fimm ára og til tólf ára aldurs." - Hvernig gekk þér í þeim grein- um? „Ágætlega. Ég varð íslandsmeist- ari í listhlaupi 10-12 ára drengja 1992.“ - Ætlar þú að æfa þær greinar á- fram? „Ég býst við að halda áfram í list- hlaupinu. En núna legg ég mesta á- herslu á nárnið." - Hvaða námsgrein þykir þér skemmtilegust? „Danska. Ég er reyndaður ættað- ur frá Danmörku. Amma mín er dönsk.“ - Hvert er eftirlætislag þitt? „Það eru ýmis falleg, róleg lög, lík laginu sem ég söng, í bljúgri bæn.“ - Hefur þú verið oft í sumarbúð- um að Ástjörn? „Frá 1991. í sumar hjálpaði ég til sem starfsmaður og hafði gaman af því.“ - Hvað hafið þið helst fyrir stafni í búðunum? „Það er ótalmargt. Við förum til dæmis á báta og húðkeipa (kajaka) á vatninu og höldum kvöldvökur með miklum söng og leiknum atrið- um. Á morgnana eru biblíutímar. Það er afar fallegt við Ástjörn og allir hafa gott af að vera þar.“ 4 8 Æ S K A N

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.