Æskan

Árgangur

Æskan - 01.08.1994, Blaðsíða 56

Æskan - 01.08.1994, Blaðsíða 56
FRA50CN VEROLAUNAHAFA I Á5KRIFENPACETRAUN ÆSKUNNAR: S* D R AU M AFERP: " I \ éS^k DANMERKUR Elisabet Leifsdóttir, ellefu ára Kefl- vikingur, vann flugferð fyrir fjóra með Flugleiðum til einhvers Norður- landanna i áskrifendagetraun Æsk- unnar. Hér er hún við stjórnvölinnn! Miðvikudagur 27. júlí. Stundin er runnin upp! Við höfum verið að und- irbúa hana frá því að Karl Helgason ritstjóri Æskunnar tilkynnti mér að ég hefði unnið flugfar fyrir fjóra til ein- hvers Norðurlandanna. Danmörk varð fyrir valinu. Ég hélt fyrst að þetta væri draumur en sannfærðist þegar ég fékk skjal afhent hjá Flug- leiðum. Þetta var fyrsta flugferð okkar krakkanna, en auk mín, mömmu og pabba eru bræður mínir Sverrir Örn átta ára og Brynjar fjögurra ára með í ferðinni. Við fórum upp í flugstöð kl. 12 og litum í Fríhöfnina og íslenskan mark- að. í loftið fórum við kl. 13.35. Það er gaman að koma í flugvél og við höfðum nóg að gera á leiðinni við að leysa þrautir í bókum sem við feng- um hjá flugfreyjunum. Við lentum á Kastrupflugvelli í Kaupmannahöfn. Þar var heitt, 27 stiga hiti, en við höfðum tapað tveimur klukkustundum sem er tíma- munur á íslandi og í Danmörku. í Kaupmannahöfn vorum við í þrjá daga. Þar er margt að sjá. Fimmtu- daginn 28. júlí fórum við að sjá líf- varðaskipti við Amalíuborg þar sem Margrét Þórhildur Danadrotting á heima. Þaðan fórum við að skoða Litlu hafmeyjuna, tákn Kaupmanna- hafnar. Síðan héldum við niður að Nýhöfn og fórum í siglingu með leið- sögumanni. Við sáum Kristjánsborg- arhöll, snekkju drottningar og fleira. Elísabet ásamt bræðrum sinum, Brynjari og Sverri Erni, í dýragarðinum í Kaupmannahöfn. SKEMMTILEGAST í KLESSUBÍLUNUM Við vöknuðum snemma á föstu- daginn og fórum í dýragarðinn. Þar voru mörg dýr, m.a. fílar, apar, Ijón, mörgæsir og eiturslöngur. Þaóan fórum við í vaxmyndasafn Louis Traussaud og safnið, Hvort sem þú trúir því eða ekki! („Believe it or not“). Þar sáum við hina ótrúlegustu menn, dýr og hluti. Þá var komið að því sem enginn Kaupmannahafnarfari má missa af: Tívolí-skemmtigarðinum meó alls konar leiktækjum og listamönnum. En skemmtilegast er að fara í klessubílana og „rússibanann". Það var „æði“! Á laugardaginn lögðum við af stað til Jótlands. Þar vorum við í sumarhúsi í eina viku. Á leiðinni þangað fórum við með ferju yfir Stórabelti. Nú er verið að smíða brú yfir það. Við vorum á góðum stað á Jót- landi, í sumarhúsahverfi í Kölker. Þaðan er stutt í Legoland sem er 5 6 Æ S K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.