Æskan - 01.08.1994, Blaðsíða 24
ÆSKU
PÓSTUR
BIRTINC BRÉFA
Kæri Æskupóstur!
Ég vil fyrst og fremst þakka
fyrir frábært blað! Mér finnst allt
í Æskunni afskaplega skemmti-
legt og hlakka alltaf til að fá
hana aftur. Ég hef nokkrar
spurningar:
1. Ef maður sendir bréf til
Æskunnar er það þá alltaf birt?
Hvað þarf að bíða lengi eftir
birtingu?
2. Veistu hvort Ace of Base
gefur bráðlega út nýja plötu?
Geturðu sagt mér í hve mörgum
löndum hljómsveitin er orðin
vinsæl?
3. Getið þið birt heimilisfang
hjá aðdáendaklúbbi hennar?
- (Ég gerðist áskrifandi í vor).
Rympa Rúllutýsla.
Svar:
Þakka þér fyrir hlýleg orð,
Rympa!
1. Nei, við getum ekki birt
öll bréf sem okkur berast. Þau
eru of mörg til þess. Spurt er
um ótal atriði svo að við höf-
um ekki tök á að svara öllu.
Of mikil vinna væri að leita
nægra upplýsinga.
Dálítið misjafnt er hve lengi
þarf að bíða eftir birtingu. Það
fer eftir því hvenær bréfin
koma. Oftast er gengið frá
þættinum u.þ.b. mánuði áður
en blaðið, sem hann birtist í,
kemur út. Við geymum öll bréf
og rennum yfir hlaðann við
undirbúning hvers þáttar.
Stundum fáum við upplýs-
ingar sem við getum notað
til að svara spurningum í
„gömlum“ bréfum. í þeim
tilvikum kunna að Ifða
nokkrir mánuðir frá því að
spurt var þar til svarað er.
En oft sendum við spyrj-
anda þá bréflegt svar.
2. Skífan hefur gefið út
plötur hljómsveitarinnar.
Starfsmaður þar vissi ekki
til þess að plata væri vænt-
anleg á næstunni (- spurt 2.
september). í erlendu blaði
lásum við að hún hygðist
senda frá sér plötu í haust.
Hljómsveitin er víða vin-
sæl. Við vitum ekki í hve
mörgum löndum.
3. Póstfang aðdáenda-
klúbbs birtist í 5. tölublaði
Æskunnar. Það hafði ekki
borist þér þegar þú sendir
bréfið. Við höfum sent þér
2. tbl. en í því var grein um
hljómsveitina.
LÍTILSAGA
Kæra Æska!
Ég sendi þér sögu eftir
mig.
GRETTIR HUNDUR
Ég rak kýrnar. Grettir hljóp
með mér. Á heimleiðinni fór-
um við í kapphlaup. Þegar við
vorum komin heim gaf ég
honum vatn. Svo fórum við í
ýmsa leiki, t.d. kött og mús.
Hrönn Jónsdóttir 8 ára.
Þakka þér fyrir söguna,
Hrönn.
BRÉFTIL
NORE6S
Kæra Æska!
Ég þakka gott blað. Viltu
birta veggmyndir með Maríu
Carey, Arnold Schwarze-
negger og krökkunum sem
leika í My Girl 2?
Eftir hve marga daga berst
bréf héðan til Noregs? Hvað
er klukkan í Noregi þegar hún
er 12 á hádegi hér á iandi?
Rósa.
Svar:
Þú hefur þegar fengið
veggmyndir af Maríu og
Arnaldi, Rósa! (5. og 6. tbl.)
Hitt verður athugað.
Bréfið getur borist við-
takanda daginn eftir að það
er sent (A-póstur) en oftar
tveimur eða þremur dögum
eftir sendingu.
Um vetur munar einni
klukkustund á tíma í Noregi
og hér - en þar er klukkunni
flýtt um eina stund á sumrin
og þá munar því tveimur.
(ísland 10 = Noregur 11 um
vetur, 12 á sumrin).
UM LEIKARA
Kæri Æskupóstur!
Getur þú birt fróðleiksmola
um eða veggmynd með
Johnny Depp og Geenu Dav-
is?
Þökk fyrir gott blað.
Grátgjörn.
Svar:
Taktu gleði þín aftur,
kæra vinkona, því að við
getum frætt þig lítið eitt um
Johnny:
Hann varð fyrst þekktur
1984 fyrir leik í hrollvekju-
gamanmyndinni, Martröð í
Elm-stræti. Tveimur árum
síðar fékk hann smáhlutverk
í kvikmyndinni Platoon. En
hann öðlaðist fyrst veruleg-
ar vinsældir þegar hann lék í
sjónvarpsþáttunum, Stökk-
stræti 21 (Jump-Street 21).
Á tíunda áratugnum hef-
ur hann leikið aðalhlutverk í
mörgum myndum, t.a.m.
„Cry Baby“ og Eðvarði
skærahendi (á móti kærustu
sinni (sem verið hefur í
mörg ár) Winona Ryder).
Þær hafa ekki verið í þeim
flokki kvikmynda sem
„skjóta“ leikurum gjarna
upp á stjörnuhimininn =
fjörugar unglingamyndir
með ástarívafi (Tom Cruise,
Michael Fox og Keanu Ree-
ves urðu stjörnur eftir leik í
slíkum myndum þó að þeir
hafi síðar sýnt á sér aðrar
hliðar). Það hefur þó ekki
komið í veg fyrir að Jonni
yrði eftirlæti unglings-
stúlkna.
Heimilisfang aðdáenda-
klúbbs:
Johnny Depp,
c/o Y.C.M.,
8942 Wilshire Boulevard,
Beverly Hills, CA 90211,
Bandaríkjum N-Ameríku.
Við biðjum fróða lesend-
ur að senda okkur línu um
Geenu Davis ...
;lpurfalla alltaf fyrir strákum sem
kunna sporið ...
NANNAEÐA
NÍNA
Kæra Æska! Takk fyrir gott
blað.
Heitir stelpan í teikni-
myndasögunni um Bert ekki
Nina Nilsson?
Getið þið birt veggmynd
með leikurum í Staupasteini
og stóra mynd af Steinaldar-
mönnunum (eins og var aftan
á 5. tbl.)?
Bert Ljung.
Svar:
Þakka þér fyrir hóiið!
Það er alveg rétt hjá þér
að draumadís Berts nefnist
Nína í sænsku útgáfunni.
Við köllum hana Nönnu
Jóns.
Myndin af Steinaldar-
krökkunum verður að duga.
Staupasteins-fólkið kemst
tæpast að.
EVA OC ADAM
OC ÆSKUVANDI
Kæra Æska!
Ég er nýorðin áskrifandi
og hef fengið eitt blað eftir
það. En öll þau Æskublöð,
sem ég hef lesið, finnst mér
frábær. Sagan um Evu og
Adam er sérstaklega
skemmtileg.
Getið þið birt veggmynd
með Michael Jordan og skrif-
að grein um hann?
Ér Æskuvandi nokkuð
hættur?
2 4 ÆSKAN