Æskan - 01.08.1994, Blaðsíða 8
ijJíUi'jjjJ UjAjj iBiihuujj ■jinwíTuuuMi
- segir „Emil“, réttu nafni Kári Gunnarsson.
Flest ykkar hafa eflaust frétt að í
septemberlok var frumsýnd ný, ís-
lensk kvikmynd, Skýjahöllin, og er
gerð eftir sögunni um Emil og
Skunda eftir Guðmund Ólafsson.
Handritshöfundur og leikstjóri er
Þorsteinn Jónsson.
Þetta er hugljúf mynd fyrir alla
fjölskylduna. Hún segir frá átta ára
strák sem á þann draum að eignast
hund. Faðir hans leyfir honum það -
ef hann geti safnað fyrir honum sjálf-
ur...
Við segjum ekki meira frá sögu-
þræðinum en ekki er ólíklegt að þið
kannist við söguna og hafið jafnvel
séð sjónvarpsgerð hennar. Hins
vegar þótti okkur ráð að taka aðal-
leikarann tali. Hann heitir Kári Gunn-
arsson, er 11 ára og á heima í Hafn-
arfirði.
Af hverju varð hann fyrir valinu ...?
LÉT MIG LEIKA TRÉ OG
FUGLA
„Mamma og pabbi sýndu mér
grein þar sem kom fram að það væri
verió að leita að leikara. Ég hringdi
til Þorsteins til að spyrja hann um
þetta. Nokkru seinna kom hann í
skólann og tók myndir af öllum í
bekknum. Þetta var veturinn 1993.
Hann fór víst í alla tíu ára bekki í
skólum í Reykjavík og nágrenni. Svo
kom hann hingað heim og lét mig
leika tré og fugla og ýmislegt
skringilegt. Fljótlega eftir það hringdi
hann heim og sagðist hafa valið
mig.“
- Hafðir þú leikið áður?
„Nei, ég hafði aldrei leikið í neinu
og hélt að ég ætti ekkert sérstaka
möguleika. Ég vildi samt reyna að fá
hlutverkið."
Kári Gunnarsson og... - ekki Skundi heldur Pedró af Lassý-tegund,
hundur nágrannanna.
8 Æ S K A N