Æskan - 01.08.1994, Page 13
ÁLFARNIR
Álfar og huldufólk hafa búið á
íslandi frá ómunatíð. Þetta fólk,
sem er flestum dulið, hefur unað
þar í sátt og samlyndi við menn-
ina og verið þeim til mikillar hjálp-
ar.
Á undanförnum árum hefur
einni tegund álfa fjölgað mikið:
Skógarálfunum! Þetta hefur gerst
með vaxandi áhuga almennings á
náttúruvernd og skógrækt.
Skógarálfarnir hafa meira að
gera eftir því sem umferð fólks
um skógana eykst og þeir verða
stærri og fjölbreyttari.
Þessir álfar hafa ýmsum hlut-
verkum að gegna og eru mjög
mismunandi að útliti og innræti.
Þar eru skógardísir, tréálfar,
blómálfar, jarðálfar og uppskeru-
álfar.
Kynntu þér íslensku skógarálf-
ana í næstu skógarferð og litaðu
þá í litabókinni.
Góða skemmtun í skóginum!
HVAÐA LITABÓK?
Það er bókin Skógarnir okkar
sem fæst ókeypis hjá gróðrar-
stöðvum Skógræktar ríkisins.
Skógræktin gaf hana út í sam-
vinnu við Skeljung hf. Hugmyndin
er sú að vekja áhuga barna á ís-
lenska skóginum. Tvinnað er
saman lífi álfa og fugla í skógin-
um og mannanna sem sækja
þangað til að njóta útiveru og
friðsældar. Bókin veitir fræðslu
um gildi skóganna fyrir náttúruna
og áhrif þeirra á veðurfar, heiti
trjátegunda og annarra lífvera
sem lifa og hrærast í íslenskum
skógum.
Skógarálfarnir eru alíslenskar
persónur sem til þessa hafa ekki
þekkst í íslenskum ævintýrum.
Skógræktin og Skeljungur vona
að þeir festi hér rætur í framtíð-
inni af því að skógarnir hafa
stækkað og eru orðnir fjölbreytt- Hér sérðu mynd af nokkrum álfum. Þú ættir að lita hana!
ari.
- Kynning Skogræktar rikisins og Skeljungs hf. -
SKÓGINUM
Æ S K A N 13