Æskan - 01.08.1994, Side 14
AÐÞAENDUM SVARAD
EIÐUR SMÁRI GUÐJOHNSEN KNATTSPYRNUKAPPI
„í FYRSTA LAGI AD ÆFA MIKID ...4
Eiður Smári er sarmkallaður snill-
ingur með knöttinn. Hann er nýorðinn
sextán ára en lék þó með meistara-
flokki Vals í allt sumar og þótti bera af
öðrum í mörgum leikjum. Hann lék
einnig nokkra mikilvæga leiki með 2.
flokki félagsins - og með unglinga-
landsliðunum U-21 og U-18 auk
U-16!
Margir bíða þess með eftirvænt-
ingu að sjá þá feðgana, Arnór og Eið
Smára, saman í A-landsliðinu. Arnór
er- enn í hópi okkar bestu knattspyrnu-
manna (nú atvinnumaður í Svíþjóð)
svo að sá draumur kann að rætast!
Hvar og hvenær ertu fæddur?
í Reykjavík 15. september 1978.
Hefur þú leikið þér með knött
frá því að þú manst eftir þér?
Já, það má segja það. Ætli það
hafi ekki verið fyrst úti í Belgíu, í
garðinum heima.
Hve gamall varstu þegar þú
fórst að fylgjast með leikjum föður
þíns?
Ég byrjaði að fara á völlinn með
mömmu þegar ég var um eins árs -
en fyrir alvöru 5-6 ára.
Með hvaða liði lék hann þá?
Anderlecht.
Með hvaða liði æfðir þú fyrst?
Brussegem í Belgíu á vetrum og
Í.R. á sumrin.
Hverjir finnst þér bestir kostir
leikmanna?
Hraði, útsjónarsemi og knattmeð-
ferð, sem sé að taka vel á móti
knetti og vera jafnvígur á báða fæt-
ur.
Hvaða leikmenn hafa þér þótt
erfiðastir mótherjar?
Engir sérstakir.
Á hvað eiga ungir krakkar að
leggja mesta áherslu ef þeir vilja
verða góðir knattspyrnumenn?
í fyrsta lagi að æfa mikið, leggja
sig fram á æfingum, æfa sig heima
og nota vinstri fótinn jafnmikið og
hægri. Sleppa tóbaki, áfengi og öðr-
um vímuefnum þegar þeir eldast.
Er munur á þjálfun ungra leik-
manna hér og erlendis?
Já, töluverð. Það er meira lagt
upp úrtækni erlendis en hér.
Hvernig var þér tekið, bráðung-
um leikmanni, þegar þú hófst að
leika með meistaraflokki Vals?
Mjög vel en auðvitað var stöku
sinnum verið að grínast með aldur-
inn.
Hve mörg mörk hefur þú skorað
alls í sumar? En flest á leiktímabili
á ferlinum?
Sjö í deildinni og tvö í bikar-
keppninni.
82 mörk í 35-40 leikjum í deildinni
í Belgíu (yngra flokki).
Hvaða knattspyrnumenn dáir
þú mest?
Romario og Arnór Guðjohnsen.
Hefur þú stundað aðrar greinar
íþrótta?
Nei, ekkert „af viti“, bara mér til
skemmtunar.
Hvað hefur glatt þig mest?
Lífið.
Eftirlætis-
leikari, íslenskur:
Steinn Ármann Magnússon
leikari, erlendur:
Eddy Murphy
tónlistarmaður: Mick Jagger
lag: „Nothing But A G-Thing“ (Dr.
Dre)
matur: blómkálsrétturinn hennar
mömmu
dýr: api
Áttu unnustu?
Já, þá fallegustu á íslandi, Ragn-
hildi Sveinsdóttur.
Hvar stundar þú nám?
í Menntaskólanum við Sund
Hefur þú hug á að leika erlend-
is?
Holland kemur mjög til greina.
f hvaða landi vildir þú helst leika
knattspyrnu?
Hollandi - Frakklandi.
Þannig vill Eiður Smári skipa heimsliðið:
M. Preud’homme (Belgíu)
Jorghinho (Brasilíu) Baresi (Ítalíu) Maldini (Ítalíu)
Santos (Brasilíu)
Arnór Guðjohnsen (íslandi) Stoichkov (Búlgaríu)
Redondo (Argentínu)
Baggio (l'talíu)
Romario (Brasilíu) Yekini (Nígeríu)
7 4 Æ S K A N