Æskan

Árgangur

Æskan - 01.08.1994, Síða 43

Æskan - 01.08.1994, Síða 43
33. hluti Þreyta, stöðnun og leiði einkenndu eftir- hippaárin 1972-1976. Hérlendis lögðu hipparokkararnir sköp- unargleði á hilluna. í staðinn hófu þeir að syngja bandaríska sveitasöngva með keyptum bulltextum: „Það blanda allir landa upp til stranda“ og „Diggi liggi ló“. [ Bandaríkjum Norð- ur-Ameríku og í Þýska- landi var tekið stærra skref frá spilagleðinni. Rafmagnstrommu- heili með einhæfum „thumb-thumb“-takti var settur í forgrunn á- samt dönsurum, glysi og blikljósum. Þetta kallaðist diskó. í fátækrahverfum Bretlands var hins vegar horfið til uppruna rokks- ins. Óagað þriggja hljóma öskurrokk tók völd. Undir forystu Sex Pistols og Clash varð svokallað ræflarokk eða pönkrokk nýr músíkstíll á gömlum merg. Kjörorðin voru: Gerðu það sjálf/ur, („Do-lt-Your- self“) og: Máli skiptir að gera en ekki geta. Pönkið varð sprengja sem stokkaði upp dægurlagavettvanginn. Rótgrónar poppstjörnur urðu allt í einu gamaldags og „úreltar". Ný gildi og ný nöfn hertóku vinsældalistana. Framhald. POPPÞÚTTURINN Umsjón: Jens Kr. Guðmundsson NENEH CHERRY Lagið „7 Seconds" með Neneh Cherry og Youssu N’Dour virðist ætla að verða eitt vinsælasta lag þessa árs. ís- lendingar voru reyndar fljótari að taka við laginu en flestir aðrir. Eftir að það hafði setið vikum saman í efsta sæti íslenska vinsældalistans fór það loks að nálgast toppsæti vinsældalista nágrannaland- anna. Framlag þessarar þeldökku söngkonu er dæmi um það hvernig framandi menn- ingarstraumar hafa eflt og fegrað sænska dægurlagamarkaðinn. Blökkumenn eru hugsanlega um 1 % af sænsku þjóðinni. Samt eru þeir um þriðjungur þeirra Svía sem seija plötur á alþjóðamarkaði í met- upplagi - með feiknatekjum fyrir sænska þjóðarbúið. Dr. Alban er frægastur þessara sænsku blökkupoppara. Nú hefur Neneh jafnað stöðuna. Nokkuð að baki þeim er söngvarinn Deep Fried. Hörundsljósir Svíar hafa raunar líka náð vinsældum með blökkumannamúsíkstílum, s.s. Ace of Base (reggí) og Stakka Bo (rabb/hipp- hopp). Neneh Cherry fæddist 10. mars 1964 í Stokkhólmi í Sviþjóð. Stjúpfaðir hennar er einn af frægustu trompetleikurum djassins, Don Cherry. Hún hélt einnig nánu sambandi við raunverulegan föður sinn, afriskan trommuleikara, Ahmadu Jarr, og átti heima hjá honum á unglings- árum. Hún varð heimsþekkt á fyrri hluta ní- unda áratugarins með frumlegri pönk- djasssveit, Rip Rig & Panic. Hún var ekki vinsæl á mælikvarða vinsældalista en vakti athygli fyrir ferska músíkblöndu og fyrir það að hinn heimsfrægi og fullorðni Don Cherry spilaði með þessari pönk- ættuðu unglingahljómsveit. Hún söng með fleiri frumlegum hljóm- sveitum og var gestasöngvari hjá The The og Slits. Fyrsta einherjaplata hennar, „Raw Like Sushi“, var viða valin ein besta plata ársins 1989. Hún seldist í milljónum ein- taka og Neneh varð álíka fræg og umtöl- uð og Björk er núna. Músíkstíll hennar var og er einhvers konar hipp-hopp dansmúsík, blönduð áhrifum frá Spáni og Afríku. Hún hefur hingað til átt þaö sameigin- legt með Björk að hana hefur vantað stakt vinsældalistalag til að verða raun- veruleg ofurstjarna. Vinsæl stór plata dugir ekki til að verða leikin æ ofan í æ í útvarpi. En nú hefur Neneh sem sé náð þeim áfanga með „7 Seconds" sem hún syngur með Youssu N’Dour frá Senegal. Æ S K A N 4 3

x

Æskan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.