Æskan

Volume

Æskan - 01.08.1994, Page 47

Æskan - 01.08.1994, Page 47
„ÞETTA VAR GAMAN“ Dagný segir mér að hún sé að læra á píanó. „Ég er að byrja annað árið mitt. Já, mér finnst það gaman. Mig lang- ar til að halda áfram að spila. Bræð- ur mínir lærðu líka á píanó.“ - Hvernig fannst þér á skemmtun Fjörkálfanna? „Mér fannst margt mjög skemmti- legt. “ - Og þið frænkurnar voruð ekkert smeykar á sviðinu ... „Nei, þetta var bara garnan." - Höfðuð þið undirbúið ykkur fyrir keppnina? „Dálítið. Helga Margrét kenndi mér lagið og mamma hennar leið- beindi okkur.“ - Nú er skólinn að byrja ... „Já, ég fer í þriðja bekk. Við byrj- um á föstudaginn." - Hvað finnst þér skemmtilegast að læra? „Stærðfræði." - Þið voruð mjög samtaka þegar þið sunguð á lokahátíðinni. Gekk ykkur líka vel þegar lagið var tekið upp? „Já, en við þurftum að syngja það oft og vorum orðnar dálítið þreyttar. Það var gott að mamma og pabbi voru þar hjá okkur og líka foreldrar Helgu Margrétar.11 SVIÐSVÖN ... Lára Sóley Jóhannsdóttir 12 ára frá Húsavík bar sigur úr býtum á Sauðárkróki... „Ég var þar með mömmu og bróður mínum. Hann var að keppa á Króksmótinu í knattspyrnu. Þar voru 5-12 ára strákar. Hann er átta ára.“ - Það var líka keppt í heimabæ þínum ... „Já, en um sömu helgina.1' - Hafðir þú stefnt að því að keppa? „Nei, þetta var ákveðið í skyndi og ég æfði mig ekki sérstaklega fyrir keppnina.“ - En þú ert ekki óvön að koma fram ... „Nei, ég hef sungið í skólakór og líka með nokkrum stelpum. Við höf- um skemmt við ýmis tækifæri. Það byrjaði með því að kona bað okkur að syngja á leikskólahátíð. Síðan höfum við sungið t.a.m. á jólaballi og áramótagleði.“ - Hefur þú lært á hljóðfæri? Birna Kristinsdóttir 11 ára frá Selfossi og Marianna Ósk Sigfúsdóttir 12 ára Akureyringur eiga saman met í limbódans-keppninni. Það er 0.55 m. Hér er Maríanna Ósk á leið undir slána. En Bima hafði betur að þessu sinni og hlaut því sæmdarheitið íslands- meistari og verðlaunagrip til stað- festingar. Meðan Ómar fylgdist með skemmtiatriði laumuðust tvö af barnabörnunum i fang hans... Gestir á samkom- um Fjörkálfanna voru þátttakendur i happdrætti. Aðalvinningurinn var fjölskylduferð með Flugleiðum til Kaupmanna- hafnar! Hér dreg- ur Margrét Helga Marsellíusardóttir vinningsnúmerið 849 úr skálinni sem Pétur Krist- jánsson heldur á. Páll Óskar hengir verð- launapening um háls Erlu Daðadóttur 7 ára úr Kópa- vogi. Við sjá- um andlit hennará myndinni af öllum sigur- vegurunum... Æ S K A N 4 7

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.