Æskan

Volume

Æskan - 01.08.1994, Page 59

Æskan - 01.08.1994, Page 59
ég ekki getað grátið. Ég felldi einungis eitt eða tvö tár við kistulagninguna og jarðarför- ina. Ég á líka afar erfitt með að reiðast og er sama hvað mér er gert. Ég slæ því oftast upp í grín. Ég veit að reiðitilfinning getur brotist út hjá mér en það er eins og ég geti ekki reiðst öðrum en sjálfri mér. Ég á það líka til að sökkva niður í þunglyndi. Ég hef (held ég) nokkrum sinnum hugsað um að fyrirfara mér. Ég er einfari, ég veit það. En veitir það öðrum krökkum afsökun fyrir því að snúa við mér baki? Það er eins og ég geti ekki treyst neinum fyrir leyndarmálum. Það er sagt frá öllu um leið. Meira að segja gerir elsta vinkona mín það. Stundum er ég fegin því að vera ein en stundum er ég skelfilega einmana. Fleira er að. Oft verð ég miður mín ef einhver snertir brjóstin á mér eða einhvern annan viðkvæman stað - þó að það sé óvart. Ég hef oft fengið martraðir eftir það. Oftast er það bróður mínum að kenna. Hann er bara sex ára en samt er hann stund- um að káfa á mér ef við fljúg- umst á í gamni. Annaðhvort löðrunga ég hann eða fer inn í herbergið mitt og stari á vegginn í klukkustund. Þín einlæg, Vandamál. Svar: Þakka þér fyrir bréfið. Það líður alltaf nokkur tími, stundum mánuður eða meira, frá því að þið sendið bréf þangað til ég geng frá þættinum. Því miður er ekki hægt að svara nema örfáum bréfum hverju sinni. Þess vegna er skyn- samlegt, t.d. ef um að- kallandi vandamál er að ræða, að snúa sér annað fremur en að bíða upp á von og óvon eftir svari. Bréf þitt sýnir að þú ert mjög neikvæð í eigin garð og hefur vantrú á að öðrum finnist eitthvað til um þig. í hugarheimi þínum veltir þú fyrir þér neikvæðum hug- myndum um vini þína. Vandamál þín eru mörg og margvísleg. Þér finnst þú of þung og hefur áhyggjur af því. Það fer þó eftir líkamsbyggingu þinni hvort nokkur ástæða er til þess. Ef þú vilt taka þetta föstum tökum og reyna að léttast verður þú að hafa stjórn á því sem þú lætur ofan í þig af mat og drykk. Sælgætisát leikur oft stórt hlutverk hjá ung- lingum. Stundum þurfa krakkar stuðning frá full- orðnum til þess að borða ekki of mikið og þó umfram allt til að borða hollan mat. Þú nefnir ekki aldur þinn svo að dálítið erfitt er að geta sér til um hvort eðli- legt er að blæðingar séu svona óreglulegar og brjóstin aum eins og þú lýsir. Ef þetta verður ekki komið í lag þegar bréfið er birt ráðlegg ég þér að að hafa samband við lækni þinn eða heilsugæslustöð. Að missa einhvern ná- kominn og syrgja er eitt af því sem allir verða fyrir ein- hvern tíma á ævinni. Sum- um tekst vel að vinna úr sorginni eins og það er stundum kallað. Það táknar að þora að syrgja og verða þroskaðri en áður. Einn mikilvægast þátturinn í því sambandi er að geta tjáð tilfinningar sínar, talað um söknuðinn, létt á hjarta sínu í trúnaði. Þegar skyld- menni þitt lést hefur þetta ekki gerst. Þú hefur líklega ekki getað unnið þig út úr sorginni. Reyndu að ræða þetta við foreldra þína. Þú þarft líka að fá að- stoð til að fá útrás fyrir reiði. Það er ekki eðlilegt að láta ganga alveg yfir sig án þess að gera nokkuð. Aðrir þættir í niðurlagi bréfsins eru nátengdir. Þegar þetta er allt skoðað saman tel ég að gott væri fyrir þig að ræða við ein- hvern sem þú treystir í fjöl- skyldunni. Það geta verið foreldrar þínir, amma, afi, frænka eða góður fjöl- skylduvinur. Athugaðu það. Einnig gæti það verið ráð- gjafi í skólanum þínum. All- ir krakkar geta líka hringt í Unglingaráðgjöfina - s. (91-) 689270. Gangi þér vel! Bestu þakkir fyrir bréfin. Ég minni ykkur enn á að rita fullt nafn og heimilisfang undir þau. Einnig er auð- veldara en ella að gefa góð ráð ef aldurs er getið. Kær kveðja, Sigurborg. æ s K a n s 9

x

Æskan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.