Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 34

Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 34
32 VALSBLAÐIÐ félagi“. Þetta var það fyrsta, sem Theodór Óskarsson, hinn gamalkunni Valsmaður sagði, er ég tók að inna hann álits á Val og Vals-deginum. Eins og fyrri daginn var mjög erfitt að hemja hann til að fá svolítið viðtal við hann, enda varð ég að taka það á hálfgerðum hlaupum. Þess ber þó að geta, að Theodór var þarna með flokk ungra leikmanna úr hinu ný- stofnaða íþróttafélagi Fylki, en þar er hann einn helzti forráðamaður. „Mitt álit á Vals-deginum er það, að hann sé einhver snjallasta hug- mynd, er komið hefur verið í fram- kvæmd hjá félaginu. Þarna gefst for- eldrum, sem ekki eru virkir félagar, tækifæri til að kynnast félaginu, starfi þess og aðbúnaði öllum. Auk þess er ég viss um að margir for- eldrar, sem koma til að sjá börn sín leika á Vals-daginn, fá meiri áhuga á eftir á því, sem börn þeirra eru að gera, en því miður vill verða mikill misbrestur á að foreldrar sýni hugð- arefnum barna sinna tilhlýðilega virðingu og áhuga. Mér finnst of mikið af því að foreldrar ætlist til þess að félögin sjái um uppeldi barna þeirra, séu einskonar „barnapíur“ í stað þess að taka virkan þátt í áhuga barnanna í íþróttum. — Þú segist vera fæddur Valsmað- ur Teddi? Já, ég hef verið í Val frá því ég man eftir mér og hef leikið í öllum aldursflokkum fyrir félagið. Nú ertu samt orðinn einn af for- ráðamönnum annars félags? Já, það má segja það. Við stofnuð- um íþróttafélagið Fylki í Árbæjar- hverfinu og ég hef verið að starfa fyrir það félag og auk þess verið þjálfari fyrir yngri flokkana. — Þú minntist áðan á að foreldr- ar gerðu félögin að „barnapíum“, tel- ur þú ekki að starf og leikir barna í íþróttafélögum hafi uppeldislegt gildi? „Það getur haft það og hefur það í flestum tilfellum, en það fer að öllu leyti eftir leiðtogunum. Það segir sig sjálft hversu vandasamt starf leiðtoganna er og ef til þeirra starfa veljast óhæfir menn, þá getur verið verr farið en heima setið. Nú var svo komið, að flokkur Fylk- is var byrjaður leik við jafnaldra sína úr Val og þar með var ekki hægt að tefja Theodór lengur svo ég kvaddi þennan ágæta Vals-mann og sneri mér að næsta verkefni. — Sdór. „Iþróttir eru sameigin- legt áhugamál ungra og gamalla“ itivtt viiJ hjónin Þorhjörn tiuiJinnndsson oij Siijuri'ós Siqurðardóttur Þau sátu á graskantinum vestan við malarvöllinn og fylgdust með leik í 3. flokki, hjónin Þorbjörn Guð- mundsson og Sigurrós Sigurðardóttir og það var auðséð að þau áttu son í öðru hvoru liðinu og við nánari at- hugun kom í ljós að hann var í Vals- liðinu. Einhvernveginn virtist mér á- hugi þeirra hjónanna svo mikill, að ég byrjaði á að spyrja þau hvort þau sæju marga leiki sem sonur þeirra tæki þátt í? „Við sjáum þá alla, sem nokkur möguleiki er að koma við að sjá og mér finnst, sagði frúin, að það ættu allir foreldrar að gera, því fyrir utan það að vera góð útivist, ber foreldr- um að mínum dómi að sýna áhugamál- um barna sinna áhuga.“ Hvernig lýzt ykkur á þessa hug- mynd með Vals-daginn? „Prýðisvel. Hann er tvímælalaust snjöll hugmynd, sem stuðlar að því að tengja foreldrana áhugamálum barna sinna. Það er stundum talað um bilið milli kynslóða, segir Þorbjörn, en mér finnst við hafa fundið í íþrótt- unum sameiginlegt áhugamál, sem tengir hina ungu og eldri saman, þannig að hjá okkur er þetta bil milli kynslóða ekki fyrir hendi.“ — Hafið þið verið félagar í Val? „Nei, ég var í ÍR segir Þorbjörn og ég í KR segir Sigurrós, en ég þekki Val frá fyrri tíð, segir Þorbjörn og vildi því alveg eins að sonur okk- ar færi í Val. Og ég er viss um segir Sigurrós að vera hans í Val hefur gert honum mikið gott. Hann hefur verið mjög ánægður með þjálfarann og leiðtogana nú, og það er að sjálf- sögðu fyrir mestu að hann sé ánægð- ur í félaginu. Ég vil endilega hvetja foreldra til að koma oftar á völlinn, þegar börn þeirra eru að leika, hafa báðir aðilar gagnoggamanafþví.seg- ir Sigurrós og hún segir þetta af sann- færingarkrafti. Við lítum á íþróttir sem uppeldislegt atriði fyrir börn og okkur finnst, að foreldrar eigi að ýta undir áhuga barna sinna til að iðka íþróttir sem er, að okkar dómi, eitt- hvað það hollasta sem börn og ung- lingar eyða tómstundum sínum í. Innilega sammála þessum ágætu hjónum kveðjum við og tökum undir orð þeirra um að allir foreldrar hvetji börn sín til að iðka íþróttir og sýni þeim áhuga sinn með því að koma og horfa á þá leiki, er börn þeirra eru þátttakendur í. — S.dór. „Mikill tími fer í íþrótt- irnar, en honum er vel varið“ svfjja hjónin FríiJa llall- dórsdóttir oq Guótnundur Jónsson „Við reynum að fara eins oft á þá leiki, er sonur okkar tekur þátt í og við mögulega getum“, sögðu hjónin Fríða Halldórsdóttir og Guðmundur Jónsson, er við tókum þau tali, þar sem þau fylgdust með syni sínum Jóni Guðmundssyni leika knattspyrnu í 3. fl. á Vals-daginn. Hann byrjaði í 5. fl. og hefur leikið stanzlaust síðan með Val og við höfum mjög góða reynslu af veru hans í Val. Það fer að sjálf- sögðu mikill tími í þetta hjá honum, Sigrurrós Sigrurðardóttir og I»orbjörn Guðmimdsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.