Valsblaðið - 24.12.1970, Blaðsíða 57
VALSBLAÐIÐ
55
Ágfúst Ögrnundsson
veit livað hann ætlar að g:era. Hvað getur
markmaður gert? — Ekkert.
Mér finnst persónulega að ég hafi orðið
allur stæltari, sérstaklega í fótum og í
öxlum, enda farið sérstaklega í að
styrkja þessa vöðva, og- komin allt önn-
ur bygging á þetta.
Mér finnst alveg sjálfsagt að deildir
Vals, og þá sérstaklega handknattleiks-
deildin og knattspyrnudeildin noti þetta
■og þá sérstaklega knattspyi'nudeildin á
veturna með þrem æfingum á viku og
svo fyrir okkur á sumrin, og svo þurf-
um við að taka eina æfingu helzt á
keppnistímabilinu í hverri viku til að
halda þessu við.
Ólafur Jónsson:
Því er ekki að neita, að maður verð-
ur sterkari og betur undir átökin búinn
eftir að hafa verið í þessum lyfting-
um.
Svo er annað mál hvort það má vera
eins stíft og við tókum það í sumar,
því við æfðum lyftingarnar í tvo mánuði
án þess að hreyfa bolta. Ég held að við
höfum líka lært að með lyftingum þurf-
um við að æfa boltameðferðina líka.
Lyftingar geta vissulega haft ágæt
áhrif á vissa vöðva. Persónulega finnst
mér að ég hafi náð vöðvastyrk í vissa
vöðva sem ég hafði ekki áður, t. d. í hand-
leggjunum, sem gerir mér mögulegt að
skjóta úr stöðu, þar sem ekki er mögu-
legt að nota allan bolinn í kastið.
Ég álít, að við höfum haft mjög gott
af þessum lyftingum. Síðan Reykjavík-
ui'mótið byrjaði höfum við ekki haft
neinar æfingar í lyftingum, en ég hef
þá skoðun, að okkur sé alveg óhætt að
taka eina slíka æfingu í viku, en svo er
það að ég tel að við verðum að hafa
möguleika til að hvíla okkur svolítið,
þar sem líka er um einn kappleik að
ræða á viku. Varðandi íslandsmótið úti
í sumar, vil ég segja að við vorum betur
undir það búnir að taka á móti mót-
herjunum í sumar, en við annars höfum
verið. Við lögðum niður æfingar í lyft-
ingum eftir mótið, og það kemur fram
að við höfum ekki sýnt eins sterka vörn
í því móti sem við gerðum í útimótinu.
Þetta ætlum við að reyna að laga núna.
Ég álít að við eigum að halda þessu
áfram, og þó að það sé annað mál, þá
finnst mér að knattspyrnumennirnir í
Val ættu að taka þetta upp. Það þarf
að fella þetta sem haganlegast saman,
að enginn verði þreyttur á þessu og
allt vei'ði notað til þess, að hinn létti
leikur, sem maður á í raun og' veru að
sýna, fái að njóta sín.
Bergur Guðnason:
Mér fannst þetta bera mjög góðan
árangur, þó að við værum ekki með
þetta nema stuttan tíma. Við gerðum
allt til að skipuleggja þetta sem bezt.
Þetta var nú heldur óþægilegur tími um
mitt sumarið, sem þýddi það, að menn
gátu ekki mætt nógu vel, og þó má
segja, að það hafi verið ótrúlega gott.
Ég held, að lyftingar þurfi að stunda
með varúð, því margir eru þannig byggð-
ir, að lyftingar geti verið hættulegar.
Fyrir hinn venjulega mann, sem ég tel
okkur flesta vera, þá tel ég það ákaf-
lega mikið atriði og þá sérstaklega hvað
snertir hina sálrænu hlið, því hún eflist
svo, að menn halda, að þeir séu tvíefldir,
þó svo hinn líkamlegi árangur sé ekki
svo ýkjamikill. Oryggi og sjálfstraust
er þýðingarmikið, þegar tveir takast á.
Ég tel því tvímælalaust að þessar lyft-
ingar hafi skapað þennan sigur, sem
við unnum í sumar, og þá fyrst og
fremst á sálfræðinni. Hitt dreg ég ekki
í efa, að líkamlegur styrkur margra
jókst, og maður sá stórstígar framfarir
hjá ýmsum mönnum, og þá ef til vill
helzt hjá þeim, sem eru meira kyrrsetu-
menn. Þeir hafa ekki aðstöðu til að
taka á eins og margii' erfiðismenn verða
að gera. Persónulega fannst mér ég
bæta við mig krafti og þreki eða svo
mikið, að mér fannst ég vera búinn að
fá nóg eftir þennan tíma, því þá fannst
mér ég vera klaufskari með boltann,
sem byggist ef til vill meira á því, að
við snertum hann ekki á löngu tíma-
bili. Ég er ánægður í alla staði með
þessar lyftingar, en við verðum að fara
varlega með þetta, og það er nauðsyn
að það sé kunnáttumaður, sem leiðbein-
ir við lyftingarnar.
Ef þróunin verður sú, að við æfum
kerfisbundið allt árið sem það verður
sjálfsagt, því þetta er allt á framfara-
braut, og þá efast ég ekki um það að
lyftingar á ákveðnu tímabili séu æski-
legar sem undirbúningsþjálfun, og mér
kæmi það ekki á óvart, þó að hægt væri
að skjóta þeim inní á keppnistímabilinu
svona við og við til þess að vita hvar
þeir væru staddir, en fyrir alla muni
að leggja ekki svo mikla áherzlu á
þetta, að boltinn gleymist. En sem sagt,
ég er mjög ánægður með þetta, mér
Bjarni Jónsson
„hátt uppi“ og skorar.
finnst meiri alvara á bak við þetta, og
menn tóku þessar æfingar mjög alvar-
lega, og það er nú einu sinni svo, að
leikinn verður að taka alvarlega, ef
árangur á að nást.
Jón Ivarlsson:
Ég byrjaði af miklum krafti að æfa
lyftingarnar og fyrirfram var gert ráð
fyrir, að þær hefðu góð áhrif.
Ég dró nú úr þessum æfingum vegna
þess að ég var í knattspyrnu líka og
náði því ekki þeim árangri, sem ég bjóst
við upphaflega og ætlaði mér að ná.
Það einkennilega vildi þó til, að meðan
ég stundaði lyftingarnar skoraði ég mörk
í knattspyrnunni, en þegar ég hætti að
æfa skoraði ég ekki mark! Ég er alls
ekki nógu ánægður með árangur minn
núna, og það kemur greinilega í ljós,
að mig vantar skothörku, sem maður
hefði átt að fá af lyftingunum.
Það er greinilegt að sú undirstaða,
sem margir fengu í sumur, hefur lyft
þeim mjög hátt og má þar nefna Gunn-
stein Skúlason, sem jaðrar nú við lands-
liðið. Ég tel því að sjálfsagt sé að æfa
lyftingarnar, sérstaklega þó yfir sum-
artimann og jafnvel að auka það frá
því, sem það var í sumar.
Ég tel, að árangur hafi komið greini-
lega fram í íslandsmótinu úti og þá
sérstaklega í úrslitaleiknum við F. H.,
þar sem vörnin var mjög sterk. Hvað
mig snertir, þá skal það játað, að ég hef