Valsblaðið - 24.12.1970, Side 66

Valsblaðið - 24.12.1970, Side 66
64 VALSBLAÐIÐ göngu, iðkaði hnefaleik og lagði stund á vöðvafræði með óvenjulegri ná- kvæmni og athygli. Matti bæði vissi það og fann, að hann var síztur bræðra sinna, ekki aðeins vegna aldursmunar, heldur og ekki sízt vegna þess, að þeir voru allir efni í afburðamenn í íþróttum. Það sem mestu réði um framfarir Matta var metnaðurinn, — óslökkvandi metnaður hans. Hann gaf þó aðeins von um sæmilegan meðalmann. Árið um kring æfði Matti sig á akri föður síns, þúsund sinnum endurtók hann stökkin, köstin og hlaupin, hann reyndi fjölda aðferða, þar.til sú rétta var fundin, sú, sem hæfði vöðva- og iíkamsbyggingu hans. Werner fór að veita því athygli, hve Matti sonur hans kastaði vel knetti og datt þá í hug, að kastgreinarnar lægju einna bezt fyrir honum. Hann var þess og fljótlega áskynja, að Matti náði einna lengst í spjótkastinu. Hann hvatti hann þá til að leggja sér- staka alúð við þá grein. Þrátt fyrir það náðu bræður hans þó mun betri árangri í spjótkasti en Matti. Samt gafst hann ekki upp, hann kastaði og kastaði, handleggurinn fór að bólgna, en áfram hélt hann að kasta, eins og ekkert hefði í skorizt. Loksins kom að því, að hann varð að fara til læknis. Hann fékk umbúðir um handlegginn og ströng fyrirmæli um það, að leggja spjótið á hilluna, a. m. k. um stundar- sakir. En það var erfitt fyrir Matta að hlýða þessum fyrirmælum, hann gat ekki stillt sig, hann vildi halda áfram að kasta, og halda kastfiminni við. Handleggurinn hélt áfram að bólgna, sársaukinn jókst stöðugt og varð að kvöl, en Matti lét eins og ekkert væri, hann kastaði áfram, því að metnaður- inn varð öllu öðru yfirsterkari. Dag nokkurn gerðist atvik, sem virtist ætla að hafa örlagaríkar af- leiðingar í för með sér. Matti var að æfa sig í spjótkasti, og spjótið flaug Iengra en nokkru sinni áður. En um leið og hann sleppti hendinni af spjót- inu féll hann við og lá afskræmdur og viðþolslaus af kvölum. Handleggurinn hékk máttvana niður með síðunni, einna líkast því, sem hann væri brot- inn. Þetta var síðasta kast Matta í möi'g ár, handleggur spjótkastarans 15 ára gamla var það skaddaður, að frá þeim degi hefur hann verið und- inn og aldrei komizt í samt lag aftur. Þrjú löng ár liðu. Það virtist aug- ljóst, að Matti Jarvinen væri úr sög- unni sem spjótkastari. Hann var kall- aður í herinn, en í finnska hernum er lögð mikil áherzla á allskonar íþróttir. Það kom í ljós við æfingarnar, að Matti var mjög góður spretthlaupari, en þó enn betri stökkvari. Það eina, sem hann gat ekki, var að kasta. En í herþjónustu verður að gera ýmislegt annað en gott þykir og í finnska hernum varð Matti Jarvinen að æfa köst, hvort sem honum líkaði það betur eða verr. Hann tók spjótið í hönd og hóf að æfa eftirlætisíþrótt sína og þótt handleggurinn væri bæði undinn og stífur var sársaukinn horf- inn og það skipti mestu máli. Áhuginn fyrir spjótkastinu jókst nú á ný, metnaðurinn var sá sami og þetta ásamt óbifandi elju og ástund- un varð til þess, að Matti fann eigin- lega upp nýja aðferð, sem hentaði handlegg hans betur. Með þessari aðferð tókst Matta að sigra alla beztu spjótkastara verald- ar og auk þess að setja hvert heims- metið á fætur öðru. — Árið 1929, þeg- ar Matti stóð á tvítugu, tók hann þátt í fyrstu keppni sinni á ævinni og kastaði þá 59,03 m. Strax þetta sama ár tók hann þátt í tíu mótum, bar sig- ur úr býtum á finnska meistaramótinu og sigraði í landskeppni við Svía, kastaði 65,52 m. Bezti árangur hans þetta ár var 66,65 metrar. Sumarið 1930 fór hann ásamt finnska methafanum í spjótkasti, Pentila, til Ungverjalands, til þess að keppa við hinn fræga ungverska spjótkastara, Béla Szebes. Finnarnir fóru sigurvissir til þess- arar keppni og voru staðráðnir í því, að sýna heiminum það svart á hvítu, að þeir væru jafnfærir um að halda forystunni í spjótkasti sem í þolhlaup- um, en um þetta leyti voru Finnar langbeztu þolhlauparar heims eins og margir vita. — í Ungverjalandi var mikil hitabylgja, er finnsku íþrótta- mennirnir komu þangað og þeim fannst hitinn draga úr sér allan mátt og viljaþrek. Það benti því allt til þess að sigurinn myndi falla Ungverjanum í skaut, þar sem hann var vanari þess- um mikla hita. Áhorfendur voru margir, er keppn- in fór fram og að sjálfsögðu hvöttu þeir landa sinn mikið, það var varla nokkur sál, sem hvatti finnsku íþrótta- mennina. Þeir voru einmana og vina- snauðir í framandi landi, án þess að hafa samúð nokkurs manns. Það leik- ur varla á tveim tungum, að hvatning- aróp áhorfenda geta örvað keppendur mjög í jafnri keppni. Béla Szebes kastaði spjótinu fyrst- ur og náði góðum árangri, svo góðum, að hver frægur kastari hefði getað verið sæmdur af. Og hrifning áhorf- enda var mikil, þeir klöppuðu landa sínum lof í lófa, rétt eins og sigurinn væri þegar unninn, en margt átti eftir að gerast í þessari keppni. Pentilá kastaði næstur og Matti síðastur. Hann var yngstur keppenda, en jafn- framt sá rólegasti. Hann virtist vera í fullkomnu jafnvægi, þótt í harðri keppni væri, og hann lét sig engu skipta, hvort áhorfendur voru með honum eða móti. Atrenna Matta var létt og fjaðurmögnuð, hreyfingarnar báru þess vitni, að hér var um íþrótta- mann að ræða, sem ástæða var til að veita athygli, enda biðu áhorfendur milli vonar og ótta um, hvort spjótið flygi ekki langt fram yfir kastmark Ungverjans. — En þeir þurftu ekkert að óttast, því að spjótið féll eftir 40 metra, fluglaust til jarðar, og þeir gátu ekki stillt sig um að brosa, — brosa að þessum út- lenda keppanda, sem kastaði ekki nema á við krakka. En Matta sjálfum var ekki hlátur í huga, því að um leið og hann kast- aði spjótinu með svitablautri hend- inni hafði hann á einhvern hátt fest hana í kastgripi spjótsins, svo að um leið og það flaug úr hendi hans rifn- aði heil flyksa af holdi og skinni úr hendinni og dró úr flugi spjótsins. Blóðið fossaði úr sárinu, svo að kalla varð í skyndi á lækni mótsins, til að stöðva blóðrásina og binda um sárið. — Hvorki keppendur, áhorfendur né starfsmenn væntu nokkurs framar af hinum unga Finna í þessari keppni. Að þeirra áliti var þætti hans lokið í mótinu. Þegar röðin kom aftur að Matta, gekk dómarinn samt til hans og spurði hann til vonar og vara, hvort hann ætlaði að kasta aftur. Já, Matti ætlaði að reyna. Með blóðugri hendinni tók hann um grip spjótsins, hljóp atrennu- brautina á enda og kastaði spjótinu lengra en keppinautar hans höfðu gert. Áhorfendur rak í rogastanz. Á þessu hafði enginn átt von, og þetta kast kom eins á óvart og þruma úr heiðskíru lofti. Þarna var á ferðinni maður, sem eitthvað gat og meira en það. Hann var gæddur óbifandi stál- vilja — hann lagði allt í sölurnar fyrir frægð hinna fjarlægu heimkynna sinna. En þetta kast Matta var ekki neinn úrslitasigur. í næstu umferð var Pentilá orðinn beztur og Szebes tók forystu strax á eftir. Finnarnir neyttu allrar orku sinnar til að halda uppi heiðri þjóðar sinnar, en allt kom fyrir ekki. Ungverjinn virtist ósigr- andi. Áhorfendur klöppuðu, stöppuðu og æptu: Szebes sigrar! Szebes sigr- ar! Fagnaðarlætin glumdu um leik- vanginn og' þeir voru sannfærðir um sigur landa síns. Þá kom að síðustu umferðinni. Szebes kastaði, en bætti ekki afrek sitt og Pentilá ekki heldur. Matti Járvinen, særði Finninn var einn eft- ir. En hvers mátti vænta af honum? Einskis. Það var fyrirfram ákveðið, enda sannfæring allra áhorfenda. Landar Szebes föðmuðu hann að sér *•

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.