Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1933, Síða 56
54
að heimsækja þau hjón á Grund og staldra við hjá
þeim. Og húsfreyjan bráðgreind og skemtileg,
engu síður en bóndinn. Hún má teljast fyrirmynd-
arkona að stjórnsemi og dugnaði og á þar góðan
hlut að þeim framförum er grundin þeirra hefur
tekið, frá því er þau settust þar að.
Landnemi N. E. 177.
Egill H. Hólm. — Hann er bróðir Gunnlaugs
Hólm. (Sjá hér að framan.) Kona Egils er Sigur-
munda Aðalrós, dóttir Ólafs bónda á Kambsmýrum,
Eiríkssonar og Guðrúnar, er bjuggu í Flateyjardal
við Skjálfanda, ættuð úr Þingeyjarsýslu. Móðir
Sigurmundu var Steinunn, gáfuð kona og hagorð,
dóttir Guðna og Ragnheiðar Benjamínsdóttur, er
bjuggu í Skál í Köldukinn. Þau Egill og Sigur-
munda giftu sig 16. júlí 1913. Um það leyti fóru
þau að búa á þessu landi, er þau liöfðu tekið rétt á,
og hefur búnast vel, því Egill er búþegn góður og
bráðduglegur. Og Sigurmunda er bæði ferðug og
stjórnsöm við búskapinn. Ágæt húsfreyja er hún,
nákvæm og umhyggjusöm við þá sem líða eða eru
lítils máttar, ekki sízt við þá sem málið vanta. B'örn
þeirra hjóna eru: 1. Vilfreður; 2. Steinþór Helgi; 3.
Olga; 4. Ragnar Smith. Nýlega hafa þau komið
sér upp góðum byggingum.
Landnemi S. E. 18.
Guðmundur Kristjánsson. — Faðir hans var
Kristján er nam land hér, (S. V. 19.) Guðmunds-
son bónda í Borgarhöfn í Suðursveit, Jónssonar
Þórarinssonar. Móðir Guðmundar Kristjánssonar
var Tngunn Guðmundsdóttir bónda á Hala í Suður-
sveit, Sigurðssonar hreppstjora á Reynivöllum, Ara-
sonar. Móðir Kristjáns var Ólöf Jónsdóttir bónda á
Kálfafelli. En móðir Guðmundar í Borgarhöfn var
Margi-ét Vigfúsdóttir prests á Kálfafelli, Benedikts-
sonar prests íVestmannaeyjum. Bróðir Margrétar
var Kristján sýslum. í Skaftafellsýslu. Á þetta land
flutti Guðmundur 1905. Hann er ókvæntur. En
son hefur hann eignast með Steinunni Gísladóttur