Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1933, Blaðsíða 61
59
Rafnseyri, föður Jóns Forseta. í báðar ættir er
Kristín vel ættborin, — enda ber hún það með sér í
svipsmóti og háttum. Til Vesturheims fluttu þau
hjón 1899, þá nýlega gift, settust þá að á Gimli. Á
landnám sitt á Víðir fluttu þau 1910. Börn þeirra
eru fjórir synir og ein dóttir: Friðrika, kona Kristj-
áns Magnússonar í Bjarnastaðahlíð í Framnesbygð.
En synir eru: Óskar, Þórarinn, Edvaldi og Sigurður.
Eldri bræðurnir eru báðir giftir. Kona Óskars er
Ingibjörg Júdit, dóttir Eggerts Arasonar af Eyja-
firði, ljóshúsvarðar við Winnipegvatn og Sigurlínu
Jónasdóttur frá Látrum við Eyjafjörð. En kona
Þórarins er Jóhanna, dóttir Jóhanns Gottfreds, al-
bróður Ingibjargar konu Óskars. Móðir Jóhönnu er
Katrín Jóna, dóttir Jóhanns bónda á Látrum í Aðal-
vík síðar landnema í Árnesbygð, Jóhannessonar
bónda í Miðvík í Aðalvík. Móðir Katrínar var
Sigríður Stefánsdóttir bónda í Hlöðuvík. Hennar
móðir var Guðrún ísleifsdóttir.
Björn Erlendsson var hagleiksmaður, hagsýnn og
verksýnn, hraðvirkur og vandvirkur, var einn meðal
hinna beztu búenda Víðirbygðar. Hann lézt 1924,
eftir langt og strangt banastríð af krabba, rúm-
lega hálfsextugur að aldri. Við lát hans var þetta
kveðið:
Gekk sá er ógaðist ekki
einvígið strangt að heyja.
Genginn er góður drengur
geðhreinn frá oss liéðan.
Garðinn sinn frægann gjöröi,
gætti hans vel og bætti.
Skarð fyrir skildi er orðið,
skaðinn er ber í staðinn.
Kristín býr nú á landinu með tveimur yngri son-
um sínum. Óskar er búsettur að Gimli, en Þórar-
inn hefur keypt land í Framnesbygð. S. E. 36-22-lE.
Þar verður framtíðar heimili hinna ungu myndar-
legu hjóna.