Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1933, Síða 82
80
Þeir sem að kjósa að rækja hér drengskap og dáðir,
dugnað og heiðarlegt starf sem að kunna að meta,
þeir sem að vilja ei vera af ómensku þjáðir,
verkin hans Þorgríms sér haft fyrir leiðbeining geta.
Ef að við viljum að umbótum vinna á jörðu,
Alla svo megi um bjartari framtíðir dreyma,
lærum af þeim, sem að barflega æfinni vörðu;
þannig skal minningu ágætismannanna geyma.
BÖÐVAR H. JAKOBSSON.
Landnemar vesturhelmings 14.
Haraldur og Sigvaldi Vidals-bræður tóku þessi
lönd og hafa þau verið höfð fyrir gripagöngu. For-
eldrar þeirra bræðra eru Sigurður Jónsson og
Kristín Grímsdóttir, ættuð úr Víðidal, og liafa tek-
ið sér nafnið Vidal. Þau búa á Fitjum í Hnausa-
bygð. Þar tóku þau land. Haraldur druknaði við
fiskiveiðar í Winnipegvatni haustið 1908, og með
honum Jón Ólafur, sonur Stefáns Guðnasonar
landnema í Geysisbygð, báðir ungir efnispiltar. Sig-
urður Vidal á nú bæði þessi lönd, er synir hans
tóku. Hann keypti landnám Kristjáns Guðjónsson-
ar í Framnesbygö (lot 27J. Sigvaldi sonur hans
fékk það fyrir sitt land norðurfrá og bjó þar nokk-
ur ár. — Kona Sigvalda Vidals er Guðrún Sigríð-
ur, dóttir Jóns landnema á Birkivöllum í Árnes-
bygð, Jónssonar bónda á Tóftum í Þykkvabæ í
Skaftafellsþingi, Einarssonar bónda í Stöðulkoti,
Magnússonar bónda á Hárima, Jónssonar, Sig-
mundssonar. Móðir Magnúsar á Hárima var Ingi-
björg, dóttir Böðvars sýslumanns í Vestmannaeyj-
um, Jónssonar. Móðir Guðrúnar Sigríðar Vidal
var Þórdís Guömundsdóttir frá Kumlavík á Langa-
nesi. Móðir hennar var Sigríður Jónsdóttir, Sig-
urðssonar frá Lóni. En móðir Sigríðar var Þórdís
Eymundsdóttir, Eymundssonar, Ólafssonar, er allir
bjuggu á Skálum á Langanesi. — Guðrún er góð
húsfreyja og bráðrösk við búskapinn. Kemur til