Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar - 01.01.1933, Page 95
93
greind. Hjá þeim hefur og alist upp piltur Þorsteinn
Alfred, er nýfæddur misti móður sína. Hann er
sonur Artliurs Hibberts og konu hans Gróu Jóna-
tansdóttur frá Miðhópi. (Sjá N. E. 9.) Á Jaðri er
fyrirmyndar búskapur á allri umgengni og háttprýði
þess heimilis að ágætum haft.
Landnemi S. V. 1.
Jóhannes Tryggvi Sigurðsson. — Faðir hans var
Job landnemi í Mouse River bygð í N. D., Sigurðs-
son bónda á Flatnefsstöðum á Vatnsnesi. En móðir
hans var Þórunn Bjarnadóttir Hildibrandssonar.
Job var hennar seinni maður. En móðir Jobs var
Magdalena Sigurðardóttir frá Katadal Gíslasonar;
kona Jchannesar Tryggva er Guðrún Björg Hall-
grímsdóttir Jónssonar og Stefaníu Sigmundsdóttur.
En móðir Hallgríms var Ingbjörg Sigurðardóttir,
systir Eiríks frá Heiðarseli föður Þórunnar seinni
konu Kristjóns Finnssonar. Á þetta land fluttu þau
lijón 1910. Börn þeirra eru: 1. Laufey Pálnía, gift
frönskum manni; 2.Gunnar Einari 3.Þórunn Esther
gift frönskum manni; 4. Stefanía; 5. Ingibjörg; 6.
Job Sigurður; 7. Jónína Grace; 8. Sigurrós Guð-
finna.
Landnemi N. V. 1.
Björn ólafsson. — Foreldrar hans voru Ólafur
Oddsson og Kristbjörg Antoníusdóttir, sem getið er
í landnematali Fljótsbygðar. Kona Björns er Þuríð-
ur dóttir Jóhannesar og Höllu á Jaðri. (S. E. 1.).
Vel gefin eru þau hjón og bráðdugleg. Flutt hafa
þau úr bygðinni og eru búsett vestur í Wynyard,
Sask. Þau eru barnlaus.
Landnemi N. E. 1.
Ólafur J. Jónasson. — Hann er sonur Jóhannesar
Jónassonar og Höllu Jónsdóttur á Jaðri. — Einn
hinn gleðiprúðasti maður, er jafnan getur haft
spaugsyrði á reiðum höndum og findin tilsvör er
komið geta fólki til þess að hlægja, án þess að
sjálfum stökkvi bros. Slíka lundprýði er sagt að
faðir hans hafi haft.