Menntamál - 01.08.1942, Side 73

Menntamál - 01.08.1942, Side 73
MENNTAMÁL 63 Frá Alþingi. Alþingi hefur nú setið nokkra daga, þegar þetta hefti Menntamála er að fara í prentun. Þó að kosið væri um tvö mál aðallega þ. 5. júlí, þ. e. kjördæmamálið og sjálfstæðismálið, og gert var ráð fyrir að þingiö afgreiddi þau mál eingöngu, þá hafa nú komið fram fjölda- mörg frumvörp frá þingmönnum. Segja má, að flest frumvörpin séu um nauðsynleg og aðkallandi mál. Eitt af þeim málum, sem mjög snertir kennarastéttina, er hækkun á grunnlaunum að viðbættri vísitöluhækkun. Tvö frumvörp komu fram um þetta: í neðri deild frá Alþýðuflokknum, í efri deild frá Sósíalistaflokknum. Nú hafa fjárhagsnefndir beggja deilda sameinast um að afgreiða málið, að mestu í samræmi við frumvörpin. Hækkunin á þó ekki að gilda nema til eins árs, en gert ráð fyrir endurskoðun launalaganna. Er hér um töluverða launabót aö ræða. Má hiklaust þakka Bandalagi opinberra starfsmanna þennan árangur. Norræna félagið hefur genist fyrir því að danskir kennarar lærðu sænsku. Hefur fé- lagið tekið höndum saman við Kennarasambönd Danmerkur og félag danskra Menntaskólakennara og beitt sér fyrir námskeiðum í sænskri tungu. Fyrsta námskeiðið er haldið í sumar frá 19. júlí til 25. júlí, á Hindsgavl í Danmörku. Finnska. kennslumálaráðuneytið hefur gefið stúdentum undanþágu frá prófi í vor. Er undanþágan fólgin í því, að nemendur, sem höfðu verið í skólunum til 1. febrúar 1942, og ætluðu að taka stúdentspróf í vor, en gátu það ekki sökum styrjaldarástandsins, skyldu undanþegnir prófi, en fá þó full prófréttindi sem stúdentar. Harmleikurinn í Noregi heldur áfram. Kennarastéttin og prestastéttin hafa verið hnepptar í fjötra, sökum mótþróa við Kvislings-leppstjórnina þýzku. Öll þjóðin stynur lemstruð og þjáð undir oki nazismans. í vor voru um 500 kennarar teknir höndum og fluttir í þrælavinnu hjá Þjóðverj- um. Sumir kennararnir voiu látnir vinna að virkjagerð í Norður- Noregi, en aðrar fregnir herma, að sumir kennararnir hafi veiið sendir tii Norður-Finnlands í þrælavinnu. Fjársöfnun handa Ncrðmönnum hefui farið fram hér á landi í sumar. Hófst

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.