Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 8

Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 8
s HEIMILISVINURINN hún til sín tvær af þernum sínum, þær er hún treysti bezt, og trúði þeim fyrir leyndarmáli sínu, og leiddi þeim fyrir sjónir blessun þá hina miklu, er þær mundu hljóta af því, ef þær vildu fylgja henni á ferðum hennar. Þær féllust á það með henni. Bræður hennar tveir og systur hennar og stjúpmæður bjuggu í sama húsinu. Nóttina, sem hún læddist á burt, sváfu þau í náðum; hóf hún svo sína hátíðlegu pílagrímsgöngu til að leita að guði og finna hann. Heilá viku voru þær að komast yfir fjöllin há og hrikaleg niður á láglendið hinu meginn. Þar voru engar járnbrautir; Chundra Lela gekk þangað til hún var orðin yfirkomin af þreytu; þá leigði hún sér kerru, sem uxar gengu fyrir, og hvíldi sig svo á meðan. En hvort sem hún fór fótgangandi eða ók í vagni á braufunum, þá taldi hún án afláts perl- urnar á rósalinda sínum og hóf upp aftur og aftur ákall sitt til guðanna og svardaga við þá; mundi hún þá formála utan að úr Yeda-bókunum og öðrum helgum bókum. Hún laugaði sig í hverju helgu fljóti og baðst fyrir í hverjum helgistað, sem var á vegi hennar. Þegar hún var á leiðinni til hins fyrsta helgistað- ar, sótti hún heim borgina Kalkútta. Hún laugaði sig í Ganges-fljótinu og baðst fyrir i Kalighat, musterinu mikla, sem Kalkútta dregur nafn af. Árið áður hafði hún farið sömu brautir með föður

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.