Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Side 13
HEIMILISVINURINN
13
færði hún Jagannath fórnlr og hvor fórn kostaði
25 rúpiur (ca. 32 krónur). Þegar hún hafði nú
út í yztu æsar fullnægt. þeim kröfum, sem guðs-
dýrkunin setti henni á þessum stað, þá lagði hún
aftur af stað í hættuför mikla, ti] næsta helgistaðar,
er liggur á suður-odda Indlands; þangað gat hún
6kki komist fyr en eftir margra mánaða ferðalag
°g þrautir. —
Musterl Eamanaths.
Ramanath er annar af hinum miklu helgistöð-
um Indlands. Hann stendur á lítilli eyju í grend
við eyjuna Ceylon og ekki langt frá Madura. Must-
erið stendur neðanvert á eynni, þar sem hæst ber
á- Umhverfis er ferhyrnd girðing, nær 600
feta löng og 57 fet á breidd. Hliðið, sem inn um
er gengið, er 100 feta hátt. Sérstaklega er þetta
niusteri frægt fyrir gangana eða opnu súlnaraðirn-
ar; alls eru gangarnir nær fjögur þúsund fet á
leugd; þeir eru frá 25—30 fet á hæð. Við dyrnar
°g á þökunum eru sumir steinarnir 40 fet á lengd.
Musteri þetta er að líkindum bygt á 17. öld.
í musterinu er kringlóttur steinn, Lingam,
Sem Indverjar blóta. Sagan segir, að guðinn Ram
hafi flutt hann þangað. Hann er þveginn í vatni
Ur Ganges(fljótinu), er síðan er selt pílagrímunum.
Musterið er bygt, þar sem guðinn Ram (ein
af myndum þeim, guðinn Vishnu [viðhaldarinn]
birtist i) á að hafa lagt brú yfir sundið miili meg-