Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Blaðsíða 27
HEIMILISVINURINN
=7
á hendi. En jafnframt kendi fóstri og fræðari
konungssonanna henni að lesa Bengali og Oriya
(tungu þá, er töluð var í Orissa). Allir auðsýndu
henni hina mestu lotningu, konungurinn og drotn-
'ngin beygðu sig enda fyrir henni með iotningu á
hverjum morgni og hverju kvöldi. Svona lifði hún
SJÖ ár i allsnægtum og naut hinnar mestu virðing-
ar. j>á dó konungurinn, og hin tignasta af drotn-
'ngum hans og elzti sonur konungs tók við ríki.
Nú var Chundra Lela 28 ára gömul. Þrátt fyrir
alt það far, sem hún hafði gjört sér um það, að
Miðka reiði guðanna, þá hafði hún ekki fundið
hvíld eða þann frið, sem hjarta hennar sárþyrsti
aftir. Hún fastréð þá með sér að gjöra nýja til-
*'aun, hina síðustu. Hana fýsti á burt frá hirðinni;
en til þess hún fengi orlof konungs, þá skrökvaði
hún að konungi, kvaðst ætla heim til ættlands
sins. Að skilnaði gaf konungur henni 25 rúpíur
(ca. 32 krónur).
En í stað þess að hverfa heim, hóf Chundra
Lela nýja pilagrímsferð. Nú hafði hún ásett sér
að verja þremur árum til líkamlegra meinlætinga,
Wl yfirbótar við guðina. Hverja þá sjálfspíningu,
Setn til var tekin í hinum helgu bókum, vildi hún
^ sig leggja, til að öðiast hylli guðanna.
Hún ferðaðist nú til Ramgunge og gekk i hóp
'beinlætamanna þar. Hún vildi vera ein í þeirra
Wlu. Hún stráði ösku um allan sinn líkama, og
Utálaði andlitið á sér rautt og hvítt, að sið mein-