Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 31
HEIMILISVINURINN
31
'Qgu orlofs, að hÚD mætti verða samferða hjónustu-
»ði hennar hátignar; veitti drotning henni fúslega
leyfi til þess. Að skilnaði fékk drotning henni líka
bi'éf, er hún skyidi færa syni hennar í Assam;
i því bréfi var Chundra Lela falin umsjá hans.
En til þess að komast til Assam varð ekki
hjá því komist að fara sjóveg nokkra daga. En
Þar sem Chundra Lela vildi ekki láta nokkurn hlut
aftrn sér frá að halda heit sitt, sat hún líka á skip-
inu og fimm bál brunnu kringum hana. Þau stóðu
i leirpottum. Þegar hún kom til Assam, var henni
tekið með mikiili lotningu af syni konungs og þar
évaldi hún við hirðina í hálfan mánuð. En að
t>eim tíma liðnum lagði liún af stað til hinna miklu
helgistaða; fékk konungssonur henni meðmælingar-
bréf til ýmsra embættismanna. Hún iaugaði sig
í fljótinu Bramapútra (sonur guðsins). Á einum
helgistaðnum fékk hún það að vita hjá presti ein-
að blóð rynni úr líkneski skurðgoðsins. Hann
éýfði þá dúk í þetta blóð og hver sem á þeim degi
kaemi til helgistaðarins og hefði þaðan með sér
Part af blóðuga dúknum, væri viss um, að hann
gæti fengið hverja ósk sína upp fylta.
Þó að enn væri sex mánuðir til þessa dags,
Þá afréð Chundra Lela að bíða dagsins, til þess að
geta sjálf verið sjónarvottur að þessari jartein og
hafa heim með sér eitt stykkið af þessum ham-
ingjuveitandi dúki. Meðan hún beið, kvaldi hún