Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Qupperneq 35
HEIMILISVINURINN
35
Hún gekk nú alt í kringum vatnið og hafði
augun á Ijósinu. Hún gat ekki skilið, hvernig
auga gæti skinið eins og Ijós á vatnsfietinum, og
henni kom til hugar að fela sig og komast eftir
Þvi, hvort hér væru ekki brögð í tafli.
Skömmu síðar, er tekið var að rökkva, sá
hún að presturinn kom niður að tjörninni. Hann
sigldi á bá*ti út á miðja tjörnina og lét olíu á lít-
iun lampa, sem var komið þannig fyrir, að hann
uáði rétt upp í vatnsflötinn.
Nú misti Chundra Lela alla trú og traust,
ekki að eins á prestunum, heldur og á helgibók-
unum. Og þó lifði hún eftir reglum þeim sarnt
sem áður. Hún dvaldi í Assarn þrjá mánuði af
hitatímanum og sat eins og fyr allan daginn í
hrennandi sólarhitanum með fimm bál logandi
hi'ing um sig. Ef hún gjörði þetta, þá átti hún,
©ftir fyrirheiti hinna helgu bóka, að öðlast alt, er
hún óskaði sér af guði.
Þegar hinir þrír mánuðir voru liðnir, fýsti
hana að hverfa aftur til Kalkútta. Maður einn
tarlendur og vel fjáður, borgaði sjóferðina fyrir
hana. Skipstjóri vildi ógjarna veita henni far,
Svona eins og hún var til reika, alþaktri ösku og
ehreinindum. Honum leitst heldur ekki á farang-
Ul'inn hennar: leirskálarnar og eldsneytið i bálin.
Hann lét hana því vita, að hún yrði að greiða
Uaeira en venjulegt fargjald. Hún greiddi það, sem
hann setti upp og fékk far. Á leiðinni skall á
3*