Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Qupperneq 39
HEIMILISVINURINN
39
boða, Júlia, var þá að boða indverskum konum
trú á heimilum þeirra og hun varð líka kennari
hinnar nýgiftu Parborti. Einu sinni er Chundra
Lela kom til hennar, þá var hún að lesa i kristi-
legri bók, — fyrstu bókinni af því tagi, sem hún
hafði nokkurn tíma séð.
„Hver hefir gefið þér þessa bók?“ spurði hún.
jStúlkan, sem kemur hingað og veitir mér tilsögn,
hefir fært mér hana“, svaraði Parborti.
„Get ég ekki fengið að finna þá stúlku?"
»Jú, komdu hingað á morgun um nónbilið; þá
verður hún stödd hérna. Hún er einmitt vön að
koma á þeim degi“.
„Ég skal vist koma hingað“.
Chundra Lela kom þangað á nefndri stundu
fiaginn eftir, en Júlía Philips gat þá ekki komið.
En í sinn stað sendi hún gamla „bíblíukonu", og
unglingsstúlku, er Surji hét.
Þeim fanst báðum mikið til um alla fram-
göngu Chundra Lela og glöddust yfir því, að hún
vildi hitta Júlíu. Þær sögðu því frá því, er þær
komu heim aftur í hús dr. Philips, að þær hefðu
séð merkilega indverska hofgyðju (konu, sem hefir
Prestsstörf á hendi), er hlýtt hefði á lestur þeirra.
Eaginn eftir fóru þær báðar frú Philips og Júlia
fundar við Chundra Lela, og af vörum þeirra
heyrði hún í fyrsta sinn fagnaðarboðskap Jesú
Krists. Hún bað þær um tilsögn í málfræðinni í
Bengali-tungunni og keypti bók af þeim. Konurn-