Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Blaðsíða 40
40
HEIMILISVINURINN
ar gáfu henni nú biblíu og sögðu henni, aö það
væri hin helga bók kristinna manna, og hana
væri henni velkomið að lesa. Hún borgaði þeim
átta Annas (1 kr. 50 a.) fyrir hana og hafði hana
heim með sér. Upp frá þessu las hún í henní
dag og nótt. Hún safnaði saman nokkrum læri-
sveinum og trúboðskonum og trúaðir aðstoðar-
menn þeirra kendu þeim ásamt Chundra Lela. En
þó fullnægði það ekki þrá hennar; fór hún því
brátt að sækja heim hús trúboðanna og þar gat
hún fengið meira að heyra um Jesúm og kenn-
ingu hans. Trúboðarnir lögðu mikla alúð við að
kenna henni og ekki leið á löngn, áður en biblían
var orðin henni svo kær, að hún lét sér ekki
nægja að lesa í henni sjálf, heldur las hún lika
upp úr henni fyrir lærisveinum sínum.
Þegar þeir komu til hennar í því skyni, að
hún, eins og fyr, læsi upp fyrir þeim Ramayana
(indverskt kvæði um afrek guðsins Rama), eða
heigibækurnar, og legði þær bækur út fyrir þeim,
þá mælti hún:
„Nei, ég vil að eins lesa fyrir yður úr nýju
bókinni minni“.
„Já, en hví lest þú ekki upp úr gömlu bók-
unum fyrir okkur?“
„Nei“, svaraði liún, „nýja bókin mín er góð
bók“.
Konurnar hlýddu á með fögnuði, en menn-
irnir sögðu: „Hvað er það annars, sem þú ert