Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Síða 42
42
HEIMILISVINURINN
„Ertu dýilingur eða ertu syndari?" /
Hún svaraði: „Faðir minn og móðir mín voru
fædd í synd og ég fæddist í synd lika. Ég hefi
dýrkað skurðgoð i mörgum iöndum, farið með
mörg ósannindi og aðhafst marga óhæfuna. Get
ég þá sagt, að ég sé góð?“
Þá spurði dr. Philips: „Þú segir, að þú hafir
dýrkað öll þessi skurðgoð — hefirðu þá fengið
fyrirgefningu syndar þinnar?"
„Ég hefi dýrkað öll þau skurðgoð, sem ég
hefi þekt. Ég hefi farið allar pílagrímsferðir og
gjört alt, sem trúarbrögð Indverja heimta; en ég
veit ekki til, að ég hafi fengið fyrirgefningu og
frið hefi ég ekki öðlast."
„Geta þessi skurðgoð þá ekki fyrirgefið syndir?"
spurði dr. Philips. „Ef þau geta það ekki, hvern-
ig geturðu þá fengið fyrirgefningu?" þá svaraði
hún:
„Ég hefi nú lesið um Jesú, að hann sé frels-
arinn, sem geti fyrirgefið mér og bjargað mér.
Og af því ég trúi því, þá langar mig til að verða
kristin".
Þá spurði Júlia: „Þú hefir séð mörg af must-
erum indversku guðanna, en hefirðu nokkurntíma
séð kirkju vora?“
„Nei“, svaraði hún, ég hefi aldrei kornið í
kristið musteri; hve nær má ég koma þangað?“
„Við höldum guðsþjónustu síðdegis á morgun,
viltu þá koma?“