Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Blaðsíða 44
44
HEIMILISVINURINN
ina vakandi og var eingöngu að velta því fyrir
mér, hvort ég myndi nú ekki bráðum fá að verða'
ambátt drottins".
Alla næstu vikuna þá hún tiisögn að vanda.
Þá gekk hún á fund dr. Philips og sagði, að hún
vildi nú gjarna fara að búa sig undir að segja
skilið við indversku vinina sína. Hún sagði hon-
um, að hún ætti eirker og fáeina peninga hjá vini
sínum einum, er byggi eigi allskamt þaðan og
spurði, hvort það myndi vera rétt að sækja það.
Dr. Philips svaraði: „Ef þú fer þangað, þá er ég
hræddur um, að Satan hvisli að þér: „Taktu pen-
inga þína og vertu hér kyr!“ Og svo sleppir hann
þér, ef tii vill. aldrei aftur“.
„Þá vil ég heldur ekki fara þangað", mælti
Chundra Leia.
Hún sagði honum nú frá öllum skurðgoða-
likneskjunum, sem hún hefði haft með sér á píla-
grímsferðunum öllum, og að hún hefði borið þær
og allar sínar sínar bækur heim til fátæks Ind-
verja. Dr. Philips réð henni til að sækja þær, og
fékk henni gamla konu til fyigdar. Hún tók nú
bæði hkneskin og bækurnar með sér heim í bú-
staðinn sinn, sem var í húsinu, þar sem lærisveinn
hennar bjó. Sambýlisfólkið spurði hana, hvort hún
hefði i huga að fara að tilbiðja skurðgoð sín aftur,
og hvort hún hefði haft þau heim með sér í því
skyni. „Nei“, svaraði hún, „öllu slíku hefi ég
slept fyrir löngu síðan“.