Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Qupperneq 45
HEIMILISVINURINN
45
Síðan færði hún dr. Philips hvorttveggja, bæk-
urnar og líkneskin. Þar á meðal var líka smá-
mynd af Ram, sem hún hafði borið frá því er hún
fór fyrstu pílagrímsferðina og dýrkað óaflátanlega
öll þessi ár.
Skömmu síðar safnaði hún saman í eitt öllu
góssi síuu og fékk það í hendur indverskum presti.
Það var ekki lengi að berast, að hún væri á burt
farin, og lærisveinar hennar og aðrir Indverjar
komu í hópum til hennar, í nýja bústaðinn henn-
ar, til að fá hana með fortölum sínum til að vera
kyrra hjá þeim, því hún hafði svo lengi verið
prestur þeirra og kennari. Hún gekk út á sval-
irnar, og sagði þeim skýrt og skorinort, að hún væri
ekki lengur Bramatrúar og hún gæti aldrei framar
veitt nokkrum manni tilsögn í trúarbrögðum Ind-
verja. Og til að sýna, að henni væri það full al-
vara, sem hún sagði, þá bað hún prestkonuna þar
að færa sér bolia af vatni. Hún tók við bollanum
af hendi þessarar kristnu konu og drakk úr honum
að öllum mannfjöldanum ásjáandi. Síðan bað hún
aðra kristna konu að vísa sér til sætis meðal
kristinna manna og tók að reykja. Svona sagði
hún tvískilið við sína stétt, og þeir, sem komnir
voru, til að hafa han'a heim með sér aftur, horfðu
á þetta. Þeir gengu þá hryggir burt og sögðn:
„Hún á ekki afturkvæmt í sína stétt, hún er úr
sögunni oss til handa". En annars var þetta í