Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Blaðsíða 46
46
HEIMILISVINURINN
síðasta skiftið, sem Chundaa Lela reykti tóbak, þó
að henni hefði áður þótt það gott.
Sonur konungsins, sem bjó í höllinni, þar sem
Chundra Lela hafði verið prestur í í sjö ár, og
bjó 4 mílur frá Midnapúr, heyrði að hún væri
tekin að hafa mök við kristna menn. Hann sendi
þá þegar menn á fund hennar, er höfðu með sér
fíl og á fílnum átti hún að koma með þeim aftur.
Sendimennirnir heyrðu sagt, að hún hefði sagt sig
úr sinni stétt; sneru þeir þá aftur svo, að þeir
hittu hana ekki. Seinna meir kom Chnndra Lela
til hallar konungs, veitti honum fræðslu í biblíunni
og boðaði Krist fyrir honum og hirð hans. kon-
ungur þessi myndi hafa orðið kristinn opinberlega,
ef ekki hefði aftrað honum óttinn fyrir þvi, að hann
myndi missa þegna sína og stöðu sína.
Eftir það að Chundra Lela hafði sagt sig úr
stétt sinni, þá bjó hún mánaðartíma í húsi ind-
verska prestsins og borgaði konunni, sem gaf henni
hrísgrjón til matar, fimm rúpíur (5 kr. 40 a).
Mestum hluta þessa tíma varði hún til að lesa í
biblíunni og gjöra sér grein fyrir hinum kristilegu
trúarlærdómum.
En svo rann upp dagur, ógleymanlegasti dag-
urinn í lifi Chundra Lela, seVu svo margir lofuðu
guð fyrir síðar. Það var sá dagur, er dr. Philips
skírði hana í viðurvist mikils mannsafnaðar. Guð
hafði ætlað honum þá miklu gleði, að framkvæma þá
athöfn, er leysti slíka konu úr þrældómi heiðninnar.