Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 57

Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 57
HEIMILISVINURINN 57 úr loftinu. Þeir lögðu líkið á bálið og reyndu að kveikja í, en það tókst ekki. Regninu vildi ekki slota og vatnið flaut yfir bálköstinn. Af því nú var að kveldi komið, þá gekk Chundra Lela fram og sagði: „Vinir mínir! getið þór ekki séð, að guð vill ekki láta brenna börnin sín, eins og Ind- verjarnir gjöra. Hann hefir heyrt bænir mínar og sendir regnið til að koma í veg fyrir áform yðar. Fáið mér þstta dýrmæta lík í hendur, svo að drott- inn beiti ekki öðrum öflugri ráðum til að knýja yður til þess“. Þeir létu þá undan og fylgdu Chundra Lela; lét hún bera líkið burt þaðan og grafa gröf; var svo líki bróður hennar sökt niður í gröfina að kristnum sið. Þrjátíu ára starfsemi. Chundra Lela var nú orðin verkamaður drott- ins, og náð guðs hvíldi yfir henni. Priðurinn einn, hinn kyrláti og djúpi, sem hvíldi yfir ásjónu henn- ur, dró menn að henni. Hún var ekki ein af þeim, sem bíða eftir ráðum og aðstoð annara, heldur fór hún, þegar drottinn kallaði hana, dag eftir dag frá sólarupprás til dagseturs og flutti fagnaðarboðskap- inn, hvar sem hún kom. Einn daginn mátti sjá hana sitja við fætur þarlendrar drotningar og lesa fyrir henni í bibliunni og öðrum konum í höilinui; öæsta dag er hún stödd á sölutorginu og pródikar þar fyrir mannfjöldanum, sem streymir fram og aftur. Og í enn annað skifti mátti sjá hann ganga

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.