Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Síða 61
HEIMILISVINURINN
6x
kom á heim úr kristniboðsferð, og nú langaði liana
til að fara aftur af stað, en hún veit ekki hvert
guðs andi vill leiða hana. Þegar guðsþjónustan var
úti, þá kom eínn indverskur heldri maður, fríður
sýnum, til hennar, og er þau höfðu kastast á kveðj-
um þeim, sem tíðkast í Austurlöndum, þá spyr hann:
„Ert þú Chundra Lela?“
„Já, sonur minn, en ég þekki þig ekki“.
„Manstu ekki, að þú varst stödd á markað-
inum (Mag Mela) í Allahabad fyrir fjórtán árum
síðan?“
„Jú, ég man eftir því“.
„Manstu þá ekki eftir því, að þú áttir einu
sinni í ákafri kappræðu við nokkra Bramapresta,
er gengu sneyptir burt hver á fætur öðrum, af því
að þeir gátu ekki Jirakið ræðu þina. Og manstu
þá ekki eftir því, að til þín kom að lokunum korn-
ungur Indverji og sagði þér frá órósemi þeirri og
þrá, er lægi á hjarta hans. Þá svaraðir þú: „Ungi
maður! ef þú vilt verða farsæll hér í heimi, og
sjá sálu þinni borgið um alla eilífð, þá kastaðu
þinni svikulu trú, og vertu sannur kristinn maður“.
hað var ég, sem þú áttir orðastað við. Ég gleymdi
aldrei þessum orðum þínum. Á þeim sama degi
' staðréð ég með mér að kynnast Kristi; en í tvö
ár þreifaði ég fyrir mér, eins og í myrkri, áður en
ég fann hann. Mér fanst það svo þungt, að verða
að sleppa öllu hans vegna. En þó réðst ég í það
^ð iokum og var skírður. Nú hefi ég verið krist-