Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 84

Heimilisvinurinn - 01.05.1906, Page 84
8< HEIMILISVINURINN ég vonandi einhvern veginn áfram, og verði ég þess nokkurn tíma megnugur, að sýna yður, hve þakk- látur ég er yður fyrir alla fyrirhöfnina á mér til þessa dags, skyldi það verða mér sæl og schn gleði!" „Sei, sei“, sagði prestskonan; „ég held nú samt, að það sé bezt fyrir þig, svona fyrst um sinn, að reyna að hjáipa sjálfum þér, svo að þú þurfir ekki lengur að liggja upp á öðrum. Iðjuleysið og ómensk- an, sem þú hingað til hefir lifað í, hlýtur nú að taka enda, og þú verður neyddur til að bjarga þér sjálfur". Kristján setti dreyrrauðan og sagði: „Fyrir- gefið mér, frú, ef ég hefi móðgað yður; ég vildi að eins sýna yður þakklátsemi mína; en ég hefi víst hagað illa orðum mínum, svo að ég hefi sært yður; en það hefði ég sízt viljað gjöra“. „Nú, jæja þá“, svaraði frúin. „Guð veri með þér; en það væri mér kærkomið, að þú reyndir sem fyrst að útvega þér annan bústað. Samt læt ég mig ekki muna um að hýsa þig einn eða tvo daga“. „Hún lætur sig ekki muna um einn eða tvo daga“, sagði Kristján í hálfum hljóðum, þegar hann var kominn til herbergis síns. Hann horfði á litla krossinn, sem hékk á veggnum yfir rúminu hans; hann fóll á kné og sagði drottni frá öllum raunum sínum. Við það létti steini af hjarta hans, og hann stóð upp og sagði: „í guðs nafni! Drottinn,

x

Heimilisvinurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisvinurinn
https://timarit.is/publication/419

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.