Muninn - 01.04.1965, Blaðsíða 4
Senn er komið að lokum þessa skólaárs. Vorvindurinn leikur nú um burstir
skólans okkar. Við finnum, að nýir dagar eru í nánd. Leiðir skiljast, við
hittumst og kveðjumst á gatnamótum, og mörgum mun líkt innanbrjóst
eins og skáldinu, sem kvað:
Að hryggjast og gleðjast
hér um fáa daga,
heilsast og kveðjast
það er lífsins saga.
Muninn hefur nú fylgt skólanum nær óslitið í þrjátíu og sjö ár. Hverju sinni
hefur hann reynt að tjá þann anda, sem ríkir í skólanum, og ég vona, að það
hafi tekizt að nokkru í vetur. Þó mun vera öllu léttara yfir skólabragnum en
blaðinu, og Munin skortir tilfinnanlega, að nemendur séu djarfari og örlát-
ari á hans vettvangi. En það er trú mín, að hagur hans fari vaxandi. Að end-
ingu vil ég þakka öllum, sem í vetur hafa lagt honum lið og þá ekki sízt
P. O. B., er hefur eins og endranær veitt blaðinu rnikinn afslátt. Hinni ný-
kjörnu ritstjórn óska ég velfarnaðar.
Á Sumardaginn fyrsta 1965,
Pdll Skúlason.
f----------------—----------------—---- ---------------------\
Smásagnasamkeppnin
íslenzkukennarar skólans fóru yfir smásögur þessar til þess að dæma þær.
Engin saga þótti greinilega bera af öðrum, en flestar ekki ósnotrar. Um sög-
urnar sýndist dómnefndarmönnum annars talsvert sitt hverjum, en til þess,
að nefndin klofnaði ekki, þótti næst lagi að veita 1. verðlaun fyrir Sögu um
brotið töfragler, sem aðeins einn setti upphaflega í fyrsta sæti, og 2. verðlaun
fyrir Góða tungl, sem einn setti og upphaflega fyrsta, með nokkrum semingi
þó. Einn nefndarmanna taldi Spor æskunnar fortakslaust bezta. Meðal
þriggja beztu voru og af sumum nefndar Máttur hafsins, Dansað á torginu
og Á kaffihúsi. — Allt þetta sýnir, hvað línurnar við verðlaunaveitinguna
voru óskýrar, en er jafnframt tákn nokkurrar grósku í smásagnagerð innan
skólans. — Frá Dómnefnd.
Alls bárust sjö sögur. Fyrstu verðlaun hlaut Jón Björnsson V. bekk, bækur
frá Bókaforlagi Odds Björnssonar, en önnur verðlaun Kristín Steinsdóttir,
IV. bekk, bækur frá Bókaverzlun Jóhanns Valdimarssonar. — Muninn óskar
verðlaunahöfundum til hamingju og þakkar þeim, sem gáfu vegleg verðlaun
til keppninnar. — Ritstj.
v________________________________________________________________y
112 MUNINN