Muninn

Árgangur

Muninn - 01.04.1965, Blaðsíða 30

Muninn - 01.04.1965, Blaðsíða 30
IÞROTTASPJALL Eins og flestir nemendur skólans munu hafa tekið eftir, hefur starfsemi ÍMA verið all um- svifamikil á þessum vetri, sem nú er nær á enda runninn. Er því ekki úr vegi að líta um öxl og rifja upp stærstu viðburði á vettvangi íþróttanna á umliðnum vetri. í upphafi vetrar bar knattspyrnan hæst allra íþrótta. Er það ekki að undra, því að all margir nemendur iðka knattspyrnu meira eða minna á sumrin og eru því á haustin í þeirri beztu þjálf- un, sem þeir geta orðið. Urslit fengust í skóla- mótinu og urðu V. bekkingar sigurvegarar, nokkuð örugglega. Innanhússæfingar hafa ekki verið í vetur fyrr en nú lítillega í vor. Ætlunin mun vera að senda lið úr skólanum á mót, sem Knattspyrnuráð Akureyrar gengst fyrir í skemmu þeirri er ÍBA hefur haft til umráða í vetur fyrir starfsemi sína. Handknattleikur hefur verið æfður talsvert í vetur en almenn þátttaka V. og VI. bekkinga langt fyrir neðan það, sem æskilegt mætti telj- ast. í byrjun desember var haldið hraðmót, sem IV. bekkur sigraði eftir harða baráttu við V. bekk. I skólamótinu snerist þetta hinsvegar við og sigraði V. bekkur í úrslitaleik við IV. bekk með eins marks mun. Mátti vart milli liðanna sjá og hefði sigurinn getað lent hvorum megin sem var. í liði V. bekkjar voru: Ólafur Ólafsson, Kjartan Guðjónsson, Jakop Hafstein, Birgir Ás- geirsson, Björn Hólmgeirsson, Páll Ragnarsson og Arnar Einarsson. Skólalið MA hefur tekið þátt í Akureyrar- og Norðurlandsmótum, bæði í flokkum karla og kvenna. í öðrum flokki hafa piltarnir staðið sig öllum vonum framar og eygja enn möguleika á sigri í Norðurlandsmót- inu. í hraðmóti, — sem haldið var nú fyrir skemmstu, — tókst meistaraflokki karla úr MA að sigra A-lið Þórs, en töpuðu hinsvegar gegn KA í úrslitaleiknum. Allgóður var leikur MA gegn MR þá er þeir léku gegn þeim á Húsavík, um miðjan febrúarmánuð. Þó fór svo að lokum að MR hafði sigur. Blakmótið sigraði máladeild V. bekkjar eftir harða viðureign við V. bekk stærðfræðideildar. Körfuknattleikur hefur verið stundaður vel í vetur. Snemma vetrar fór fram hraðmót, sem IV. bekkur sigraði eftir jafna og harða baráttu við V. bekk. Skólamótinu er enn ekki lokið, en tvö lið eru taplaus enn sem komið er, IV. og V. bekkur. Frammistaða III. bekkjar er einnig lofs- verð, en þeir eiga góðu liði á að skipa. Árangur skólaliðsins hefur verið með bezta móti og hæst ber árangur þeirra gegn Borgnesingum og Stykkishólmsbúum. Piltarnir sigruðu í Borgar- nesi 62:60 í hörðum leik og léku enn betur í Hólminu og sigruðu þar 61:40. í Akureyrar- og Norðurlandsmótum hafnaði liðið í þriðja sæti, næst á eftir KA og Þór, en átti gegn þeim all- góða leiki, einkum var munurinn litill nú í vor í Akureyrarmótinu. í hraðmóti Akureyrarlið- anna sigraði MA Þór (A-lið), en tapaði í úrslit- um gegn KA. Leikjum liðsins gegn MR hér í vetur lyktaði með sigri MR 107:65 og 78:49, Hnit hefur dafnað mjög vel undir öruggri for- sjá Ellerts Kristinssonar. Vii'ðist þessi íþrótt vera að ná miklum vinsældum og stendur nú yfir skólamót, en það hefur ekki verið haldið frá því árið 1956. Sundiðkun er talsverð og hefur fremur fá- mennur en knár hópur æft vel í vetur. Ellefu manna flokkur tók þátt í Sundmóti skólanna, sem fram fór í Reykjav,ík, nú í marz. Stóðu þeir sig mæta vel og urðu m. a. aðrir í 10x33 % m boðsundi á mjög góðum tíma, aðeins sjónarmun á eftir Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Skólamót- ið hefur enn ekki farið fram, en væntanlega verður það háð áður en skólanum lýkur. Vil ég einkum beina þeim tilmælum til kvenþjóðarinn- ar að mæta betur til leiks, en verið hefur á und- anförnum árum. 138 MUNINN

x

Muninn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.