Muninn - 01.04.1965, Qupperneq 8
Annalis Scho
Fyrsta dag febrúarmánaðar kom á Sal í til-
efni bindindisdagsins ágætnr gestur, Björn
Jónsson læknir sem er gamall nemandi skól-
ans. Ræddi hann áfengisvandamálin af hóg-
værð, og stakk ræða hans nokkuð í stúf við
venjulegar bindindispredikanir.
Um miðja vikuna tóku menn að syngja
mánaðarfrí og sannaðist þar hið forn-
kveðna, að ekki sé ráð, nema í tíma sé tekið.
Hringt var því á Sal 4. febrúar og mánaðar-
frá ákveðið daginn eftir, nemendum og
flestum kennurum til mikillar ánægju.
Sunnudagskvöldið 7. febrúar var mál-
fundur haldinn í setustofunni. Að þessu
sinni voru umræðuefnin tvö; tónlist, sem
Jósep Blöndal hafði framsögu um, og fjölg-
un menntaskólanna, frummælandi Svanur
Kristjánsson. Var fundur þessi hinn fjörug-
asti.
Leikfélaginu heppnaðist ekki að þessu
sinni að fá aðstöðu til að sviðsetja neitt
leikrit. Þess í stað var Haraldur Björnsson
fenginn hingað norður til framsagnar-
kennslu. Avöxtur starfs hans sýndi sig f 1 jót-
lega, því að nemendur hófu að undirbúa
samfellda skemmtidagskrá. Frumsýning var
svo 8. febrúar. Var leikhúsgestum þar boðið
upp á margvíslegt skemmtiefni, upplestur,
söng, hljóðfæraslátt og stutta leikjxetti.
Þessi skemmtidagskrá, er nefnd var Gaude-
amus, var sýnd 8 sinnum hér í bænum, og
loks voru tvær sýningar á Siglufirði í lok
mánaðarins.
Þann 15. febrúar hélt 5. bekkur dansleik
á Sal. Aðsókn var ágæt, sérstaklega fylktu
meyjar liði J:>angað, því að Jiá var staddur
hér í heimsókn flokkur íjrróttabolta- og
Irridgespilara úr MR. Kepptu þeir við okk-
ar menn, sem biðu að sjálfsögðu hinn
hraklegasta ósigur.
Sá stórmerki atburður gerðist 17. febrú-
ar, að lífsmark sást með raunvísindadeild-
inni. Gekkst stjórn hennar fyrir gagn-
merkri efnafræðitilraun í náttúrufræðistof-
unni, sem líklega hefur bara tekizt vel, því
að enginn meiddist alvarlega.
Tónlistarkynning var í setustofunni 23.
febrúar. Kynntir voru expressionisminn og
impressionisminn. Fyrr í þessum mánuði
gekkst stjórn tónlistardeildar fyrir jazz-
kynningu. Ekki virðist tónlistaráhugi í skól-
anurn almennur, Jró að oft sé vel til kynn-
inga vandað.
Fimmtudaginn 23. febrúar komu hingað
norður Laugvetningar og Reykvíkingar í
nemendaskiptum. Hringt var á Sal og þeir
kynntir. Síðan var sungið af miklum krafti.
Um kvöldið var svo mjög vel heppnuð bók-
menntakynning. Flutti Friðrik Þorvaldsson
kennari bráðsnjallt erindi um Stefán Zweig,
en síðan lásu nemendur valda kafla úr verk-
um skáldsins.
A föstudagskvöld var kvöldvaka haldin í
setustofunni, sunnanmönnum til yndis-
auka. Fluttu nemendur Jrar ýmiss konar
skemmtiefni, og að lokum var skugga-
myndasýning. Daginn eftir, á laugardag,
voru sunnanmenn kvaddir á Sal. Mæltu for-
kólfar þeirra nokkur orð að lokum. Um
kvöldið héldu fjórðubekkingar dansleik, og
á sunnudag héldu svo gestir okkar aftur til
síns heima.
1. marz hófst hér á Akureyri bindindis-
vika. Var nemendum MA boðið að hlýða á
samfellda bindindisdagskrá í Borgarbíói
þann dag. Voru sumir fremur latrækir og
fýsti heldur að dvelja á kaffihúsum eða
búllum, en um síðir tókst þó að smala öll-
um á bindindishátíðina. Voru Jjarna sýnd-
ar bráðskennntilegar bíómyndir auk
116 MUNINN