Muninn - 01.04.1965, Page 27
FELIX FÉNÉON:
Þrjár sögur í þrem línum
Silot þjónn kom sér fyrir á heimili húsbónda síns
í fjarveru hans ásamt skemmtilegri konu.
Síðan hvarf hann og tók allt með sér nema hana.
Fasiot og Varlot, tveir litlir drengir frá Nangis (Signu- og Marnehéraði)
léku sér að velta trjábolum upp á járnbrautarteinana.
Flutningalest fór út af sporinu.
„Að deyja eins og Jeanne d’Arc,“ sagði Terbaud ofan úr bálkesti,
sem hlaðinn var úr húsgösfnum hans.
o o
Brunaliðið í Saint-Owen hindraði hann í því.
Þýtt.
T)ulbúin?
Ég leggst hérna niður við lauftréð,
og laufið ég held að sé þétt,
en sólgeislar sitra á milli
og setjast á fjölmargan blett.
Það koma fram kynlegir dílar,
á kjól minn ég lít — og verð smeik,
því menn hljóta að undrast og ætla,
að ég sé í gíraffaleik.
B. B. (þýtt).
MUNINN 135