Muninn

Ukioqatigiit

Muninn - 01.04.1965, Qupperneq 31

Muninn - 01.04.1965, Qupperneq 31
Aldrei hefur merki frjálsíþróttanna borið jafn hátt og nú. Innan vébanda ÍMA eru mjög góð- ir afreksmenn, en fjöldi þeirra, er æfa reglulega er ekki nógu mikill. í marzmánuði keppti sjö manna flokkur í frjálsíþróttamóti skólanna og stóðu sig sem vænzt var með prýði. Sigruðu þeir í unglingaflokki og hlutu að launum dálag- legan bikar. í Innanhúsmeistaramóti Akureyrar átti MA alla fremstu menn í karlaflokki. Skóla- mótið féll niður í haust og er það hálf sviplegt, að svo gott mót, sem það hefur oft verið, skuli hafa farizt fyrir tvö ár í röð. Innanhússmót MA í frjálsum íþróttum. 9. apríl fór fram skólamót MA í frjálsum íþróttum innanhúss. Árangur var frábær og þátttaka mjög mikil í öllum greinum. Helztu úr- slit urðu sem hér segir: Hástökk með atrennu. 1. Kjartan Guðjónsson V. b......... 1,87 m 2. Jóhannes Gunnarsson V. b.........1,74 m 3. Þormóður Svavarsson VI. b........1,70 m 4. Guðmundur Pétursson IV. b.......1,70 m 5. Kristján Eiríksson V. b..........1,70 m 6. Guðmundur Hafliðason V. b.......1,67 m Keppendur voru 13. Hástökk án atrennu. 1. Ellert Ólafsson VI. b........... 1,55 m 2. Jóhannes Gunnarsson V. b.........1,46 m 3. Kristján Eiríksson V. b..........1,46 m 4. Gestur Þorsteinsson VI. b........1,46 m 5. Kjartan Guðjónsson V. b......... 1,40 m 6. Guðmundur Pétursson IV. b.......1,40 m Keppendur voru 11. Langstökk án atrennu. 1. Guðmundur Pétursson IV. b......3,13 m 2. Ellert Ólafsson VI. b..........3,13 m 3. Ríkharður Kristjánsson V. b.......3,04 m 4. Stefán Eggertsson V. b........... 3,04 m 5. Jóakim Ottósson IV. b.............3,00 m 6. Valtýr Sigurðsson VI. b...........2,96 m Keppendur voru 14. Þrístökk án atrennu. 1. Ellert Ólafsson VI. b............ 9,49 m 2. Ríkharður Kristjánsson V. b.......9,11 m 3. Þormóður Svavarsson VI. b.........8,89 m 4. Guðmundur Pétursson IV. b.......8,87 m 5. Kristján Eiríksson V. b...........8,82 m 6. Stefán Eggertsson V. b........... 8,81 m Keppendur 18 talsins. í stigakeppni bekkjanna sigraði V. bekkur, 40 stig, VI. bekkur 29 og IV. 15 stig. Að lokum vil ég koma þeirri ósk minni á framfæri, að fjöldi virkra meðlima í félaginu eigi eftir að aukast að mun þegar á næsta ári, einkum meðal okkar veikara kyns. Takmark íþróttanna er ekki fyrst og fremst að framleiða afreksmenn, heldur að fá sem flesta til að taka þátt í einhverri íþróttagrein við hæfi hvers og eins, mönnum til heilsubótar og tómstundagam- ans. Jóh. G. Bridge Starfsemi BMA hófst í haust með tvímennings- keppni. Tólf pör tóku þátt í keppninni. Barátt- an um efsta sætið var hörð og spennandi, en henni lauk með sigri þeirra Bjarna G. Sveins- sonar og Sigurðar Hafliðasonar. Nokkuð þótti kenna æfingaleysis hjá keppendum. muninn 139

x

Muninn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Muninn
https://timarit.is/publication/429

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.